

Fjárfestingar í fullum gangi
Sjálf neyðumst við til að beita gjaldeyrishöftum og heimilin í landinu líða fyrir óstöðugleika gjaldmiðilsins. Forystumenn í atvinnulífinu og raunar þjóðin öll skynjar æ betur að á vandanum verður að taka og engum dyrum má loka. Þannig vill nú 61 prósent þeirra sem tóku afstöðu í nýlegri könnun ljúka aðildarviðræðum við ESB.
Tíu milljarðar á þessu ári
Ríkisstjórnin getur borið höfuðið hátt í þessum efnum. Margvísleg verkefni og framkvæmdir, sem falla undir fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar, eru nú hafnar eða eru á undirbúningsstigi. Þær eru fjármagnaðar með arði af eignarhlutum ríkisins í bönkunum og veiðigjaldi sem lögleitt var á síðasta ári. Samtals nema fjárfestingar í krafti áætlunar ríkisstjórnarinnar 10,3 milljörðum króna á þessu ári; 4,2 milljarðar króna renna til hennar af veiðigjaldinu en um 6,1 milljarður er arðgreiðslur vegna eignarhluta í bönkunum.
Fjárfestingaráætlunin, sem kynnt var snemma sumars í fyrra, gerði okkur kleift að flýta samgöngubótum en áætlað er að 2,5 milljarðar renni til þeirra á þessu ári. Tilboð verða opnuð innan tíðar í Norðfjarðargöng og ráðgert er að hefja framkvæmdir síðsumars. Einnig verður 640 milljónum króna varið á þessu ári til framkvæmda við Landeyjahöfn og til hönnunar nýs Herjólfs.
Framlag til rannsókna- og tækniþróunarsjóða hefur verið aukið um 1,3 milljarða króna. Ég veit að það mælist hvarvetna vel fyrir enda þurfum við í sífellt meiri mæli að treysta á sérhæfða kunnáttu og tækniþekkingu í atvinnulífinu.
Fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar var frá upphafi ætlað að örva skapandi greinar, auka veg græna hagkerfisins og efla hag ferðaþjónustunnar. Þannig hafa framlög til Kvikmyndasjóðs verið hækkuð um 82 prósent á þessu ári. Framlög til verkefnissjóða lista og skapandi greina hækka um 250 milljónir króna. Hálfum milljarði króna verður varið til uppbyggingar ferðamannastaða. Ekki er óalgengt að annað eins komi frá fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem mótframlag.
Í nafni áætlunarinnar verður stofnaður grænn fjárfestingarsjóður með 500 milljóna króna framlagi. Hann verður vistaður í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og styður þar m.a. starfsemi Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Þá er ráðgert að verja öðrum 280 milljónum króna á vegum forsætisráðuneytisins til að auka fjölbreytni atvinnulífsins og örva græna hagkerfið.
Menningin skapar verðmæti
Nýverið var tekin skóflustunga að nýju húsi íslenskra fræða við Háskóla Íslands. Þar verður Árnastofnun til húsa í framtíðinni, handritin okkar dýrmætu og menningardeild Háskóla Íslands. Opinbert framlag til framkvæmdanna er hluti fjárfestingaráætlunarinnar og nemur 800 milljónum króna. Aðrar 600 milljónir króna til verksins koma frá Happdrætti Háskóla Íslands.
Þá hefur samist um leigu á Perlunni undir Náttúruminjasafn Íslands, en 500 milljónum króna verður varið til safnsins á þessu ári af fjármunum fjárfestingaráætlunarinnar.
Margt fleira mætti nefna, eins og framkvæmdir við fjölsótta ferðamannastaði sem miða að vernd friðlýstra svæða. Það er líka ánægjulegt og viðeigandi nú í „Hönnunarmars“ að jafnframt auknum framlögum til verkefnissjóða lista og skapandi greina hafa verið stofnaðir nýir sjóðir eins og Hönnunarsjóður og Handverkssjóður.
Allt sem hér er nefnt snertir verkefni sem hafin eru eða eru í undirbúningi. Ríkisstjórnin hefur því ótrauð stuðlað að fjárfestingum og tekist að fjármagna þær með arði af eignum og auðlindum þjóðarinnar.
Skoðun

Hugtakastríðið mikla
Sigmar Guðmundsson skrifar

Forsjárhyggja Sjálfstæðis- og Framsóknarfólks í Hafnarfirði í garð fólks með fötlun
Stefán Már Gunnlaugsson skrifar

Ekki er allt sem sýnist
Ólafur Helgi Marteinsson skrifar

Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum?
Jóna Sigríður Valbergsdóttir skrifar

Vilji til að rjúfa kyrrstöðu í húsnæðiskreppunni
Finnbjörn A. Hermannsson skrifar

Grænt ál frá Íslandi er mikilvægt fyrir sjálfstæða Evrópu
Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar

Þegar barn óttast önnur börn
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Falsfréttastjóri RÚV dýpkar holuna sína
Einar Steingrímsson skrifar

Ákall um breytingar
Gissur Freyr Gissurarson skrifar

Veit sem sagt Grímur betur?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hvernig talar maður við tölvur og hafa vélar rökhugsun?
Henning Arnór Úlfarsson skrifar

Laun kvenna og karla
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar

Verkin sem ríkisstjórnin verður dæmd af
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Open Letter to new HÍ Rector re Disability Support
Hópur starfsfólks og nemenda við HÍ skrifar

Vanfjármögnun vísindanna
Magnús Hallsson,Styrmir Hallsson skrifar

Kárhóll og Kína: Þegar vísindi verða pólitísk tól
Davíð Michelsen skrifar

Mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur – Hvernig manneskjur viljum við vera?
Hulda Steingrímsdóttir skrifar

Ríkisstjórn gegn fjölskyldusameiningum?
Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar

Lýðræðið deyr í myrkrinu
Heiðar Örn Sigurfinnsson skrifar

Færni til framtíðar
Álfheiður Ingólfsdóttir skrifar

Ofbeldi
Bjarni Karlsson skrifar

Lestu Gaza
Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar

Ný fjármálaáætlun - tækifæri til að efna loforðin um bætt geðheilbrigði
Sandra B. Franks skrifar

10 ár og bull í lokin
Jón Pétur Zimsen skrifar

Opið bréf til atvinnuvegaráðherra: 48 daga, nei takk
Gísli Gunnar Marteinsson skrifar

Á nú að opinbera það að ég veit í rauninni ekki neitt?
Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar

Háskóli Höfuðborgarinnar, ekki Íslands
Arent Orri Claessen,Gunnar Ásgrímsson skrifar

Hrynur sjávarútvegur?
Stefán Ólafsson skrifar

Iftar, agape og Eid: Kristnir og múslimar við sama borð
Hilal Kücükakin Kizilkaya,Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Bætt skipulag fyrir stúdenta
Aðalsteinn Haukur Sverrisson ,Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar