Jóhanna Karlsdóttir kynnti heitt jóga fyrir Íslendingum árið 2009. Hún kennir í heitasta sal landsins í Sporthúsinu og miðlar nú fræðunum um víða veröld.
„Heitt jóga er einfaldara en marga grunar og allir geta stundað það á sínum styrk og með sama árangri,“ segir Jóhanna sem komst fyrst á snoðir um heitt jóga þegar hún dvaldi í heilsulind á Taílandi.
„Þá starfaði ég á verkfræðistofu en féll kylliflöt í fyrsta tímanum og ákvað tveimur árum síðar að fara utan til Taílands til að verða fullnuma í kennslu heits jóga,“ útskýrir Jóhanna.
Hún segir hátt hitastig við ástundun æfinga skipta sköpum fyrir aukna hreyfigetu.
„Kjörhitastig í sal fyrir heitt jóga er 38 til 40 gráður á Celsíus. Æfingar og stöður í heitu jóga hafa verið stundaðar í þúsundir ára og miða að því að beita líkamanum rétt, liðka liðamót og styrkja alla vöðvaflokka til jafns, sérstaklega djúpvöðva sem liggja að beinagrind. Því fá margir bót meina sinna í heitu jóga sem beitt hafa líkama sínum rangt,“ segir Jóhanna sem var sjálf illa haldin af verkjum í mjóbaki en hefur ekki kennt sér meins eftir að hún fór að stunda heitt jóga.
„Byrjendur jafnt sem lengra komnir geta sótt tíma í heitu jóga því hver og einn gerir líkamsstöður eftir eigin mætti. Ég legg ríka áherslu á rétta öndun sem þarf að vera hæg og djúp. Í hitanum opnast æðakerfi líkamans betur og við það eykst súrefnisflæði til allra vöðvahópa sem svo enn eykur á árangur og virkni æfinga.“
Jóhanna á og rekur fyrirtækið Hot Yoga ehf. í Sporthúsinu. Þar fer kennslan fram í heitasta og fyrsta sérútbúna sal landsins fyrir heitt jóga.
„Ávinningur þess að ástunda heitt jóga er víðtækur og með því að hugsa inn á við verður maður meðvitaðri um eigin líkama. Þá flokkast heitt jóga undir hámarksbrennslu og stendur á pari við útihlaup og sund sem er mesta brennslan. Upplifunin er mikil og einstök vellíðan sem fylgir endorfínframleiðslu líkamans við áreynslu í heitu jóga. Maður sér hvað öllum líður dásamlega eftir æfingar og ánægjulegt að sjá muninn á andlitunum fyrir og eftir æfingu,“ segir Jóhanna og brosir. „Áhrifin eru mikil og góð í heitu jóga, bæði á líkama og sál.“
Sjá nánar á hotyoga.is og absoluteyogaacademy.com.
Hiti skiptir sköpum
