Skoðun

Öll verðtryggð húsnæðislán eftir 01.11.2007 verða leiðrétt

Kjartan Örn Kjartansson skrifar
XG-Hægri grænir, flokkur fólksins, hefur birt stefnu sína um leiðréttingu verðtryggðra húsnæðislána, sem hann vill koma á með setningu neyðarlaga strax og hann kemst til nægilegra áhrifa og vill þá gera það eigi síðar er 17. júní í ár. Miða þarf leiðréttinguna við 1. nóvember, 2007, þegar almenn verðtryggð, afleiðutengd, neytendalán urðu ólögleg hér á landi eða þegar að MiFID reglugerð EES/ESB var lögleidd.

Þetta þýðir að allir, sem áttu verðtryggð húsnæðilán eftir þessa dagsetningu munu fá leiðréttingu til dagsins í dag í réttu hlutfalli. Það á líka við um þá, sem tóku lán sín fyrr eða þá, sem greiddu upp lán sín eftir þann tíma. Allir munu fá leiðréttingu sinna mála frá 01.11.2007. Undanbragðalaust.

Bankarnir eða fólkið

Seðlabankinn mun stofna sérstakan sjóð innan sinna eigin veggja, sem kaupir öll verðtryggð húsnæðislán og skuldbreytir þeim eða endurgreiðir hina ólöglegu ofgreiðslu í tilfelli þeirra, sem voru búnir að gera upp. Hann mun gefa út ný skuldabréf skuldunautum til handa til langs tíma til þess að stilla greiðslubyrðina af við greiðslugetuna. Nýju bréfin verða færð niður til þess, sem þau hefðu verið 01.11.2007 og munu bera 7,65% fasta vexti. Með því að Seðlabankinn láni sjóðnum á 0,01% vöxtum mun það taka sjóðinn 9 ár að komast í jafnvægi. Það er vaxtamunurinn, sem mun greiða upp þessa leiðréttingu. Þannig rennur þessi mismunur því til fólksins en ekki til bankanna, sem hefði verið ef ekkert væri að gert. Stimpil- og uppgreiðslugjöld vegna aðgerðanna verða afnumin og útburðum sýslumanna frestað.

Ekki verðbólguhvetjandi

Hinn nýi sjóður mun greiða lánardrottnunum, eigendum gömlu bréfanna, bréfin að fullu. Þannig fá þeir allt sitt strax og vandi ÍBLS þar með leystur, en með því að þeim er gert með sérstakri bindiskyldu að geyma fé sitt í Seðlabankanum, þá mun það fé ekki fara í umferð fyrr en Seðlabankanum þóknast það með stjórn sinni á peningamagni í umferð til þess að ráða við verðbólguna.

Þetta svínvirkar

Það þarf ekki að skoða eða leita eða kortlegja eitt eða neitt. Það er búið að gera það. Þetta er þaulreynd og þekkt aðferð, sem t.d. lesa má um á Wikipedia.com undir „TARP” og „Quantative easing” eða á www.xg.is undir Kynslóðasáttin. Þetta er eina lausnin, sem er fær eða til er án þess að hækka skatta á alla alþýðu manna eða að það kosti stórfé, sem annaðhvort er ekki til eða þarf að nota í svo margt annað. Það er afar mikilvægt að fólk skilji og geri sér fulla grein fyrir þessu stórmáli, sem svo margir þjást undan og ef það vill að þessum leiðréttingum verði komið á fyrir sig, þá verður það að kjósa Hægri græna með því að setja X við G 27. apríl nk.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×