Skoðun

Auðlindirnar okkar

Jón Gunnar Björgvinsson skrifar
Ísland er ríkt land. Við eigum gnótt auðlinda. Þar á meðal fallvötn, jarðhita, fisk, óspillta náttúru og jafnvel olíu.

Okkur hefur hins vegar ekki tekist nógu vel til með nýtingu auðlindanna. Aflaheimildum er úthlutað á grunni forréttinda og sérhagsmunaöfl seilast sífellt meir í aðrar sameiginlegar auðlindir okkar.

Á árunum fyrir hrun var markvisst unnið að því að einkavæða vatnið og í kjölfarið átti að einkavæða Landsvirkjun og Orkuveituna. Án nokkurs vafa hefði það nú þegar tekist ef efnahagskerfi okkar hefði ekki hrunið til grunna haustið 2008.

Fyrstu skrefin voru lög um þjóðlendur og vatnalögin. Þessi lög tryggðu fullt eignarhald á vatni. Lykilatriði! Í ærsladansinum upp úr miðjum síðasta áratug fóru svo einkaaðilar að stofna félög ásamt orkuveitunum. Er þar helst að nefna REI. En það var aðeins fyrsta skrefið inn í veiturnar.

Meðal þess sem gerði mönnum kleift að seilast svona í vatnið, veiturnar og orkuna var tíðarandinn og jafnframt að mun minni deilur voru um kvótakerfið en verið höfðu árin á undan. En á meðan hart er deilt um eignarhald á kvótanum er erfitt að ganga í það óþverraverk að sölsa aðrar auðlindir undir sig.

Frekari atlaga

Engum skyldi til hugar koma að ekki verði frekari atlaga gerð að auðlindum okkar. Nú á td. að koma Landsvirkjun í hendur einkaaðila með milligöngu lífeyrissjóðanna. Hljómar saklaust: Lífeyrissjóðirnir eru jú okkar sameiginlega eign - næstum opinberir aðilar. En gætum að því hverjir halda um stjórnartaumana þar.

Auðlindaákvæðið í drögum að nýrri stjórnarskrá er okkur almenningi nauðsyn. Það er einnig ástæða þess að ekki var vilji til að samþykkja stjórnarskrána og er ástæða þess að aldrei verður þverpólitísk sátt um þessar stjórnarskrárbreytingar: Sérhagsmunaöflin ætla sér að slá eignarhaldi sínu á sameiginlegar eignir okkar.

Nú er barist um fiskimiðin. Þar er víglínan í dag. Um leið og við gefum þær eftir og viðurkennum forréttindi örfárra yfir sjávarauðlindinni verður barist um aðrar auðlindir: Og þá verður við ofurefli að etja.

Þetta er meginástæða þess að við berjumst fyrir réttlátri fiskveiðistjórnun. Þetta er ástæða þess að aldrei má gefa sjávarauðlindina eftir.

Þetta er ástæða þess að við verðum að kjósa óspillt stjórnmálaöfl í komandi kosningum!




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×