Matur

Helgarmaturinn - Stjána bláa kjúklingur

María Krista Hreiðarsdóttir er menntuð sem grafískur hönnuður og rekur Kristadesign.is. María Krista er þriggja barna móðir og mikill matgæðingur en LKL-mataræðið hefur verið í miklu uppáhaldi.

4-5 kjúklingabringur

1 Tex mex smurostur

1 poki ferskt spínat

1-2 dl rjómi

Smjör

Pipar og salt eftir smekk

Steikið kjúklinginn í smáum bitum upp úr smjöri og kryddið með pipar. Takið af pönnunni og leggið til hliðar.

Hellið heilum poka af spínati á pönnuna og steikið, má bæta við dálitlu smjöri. Þegar laufin hafa skroppið saman þá bætið þið við smurostinum og látið hann bráðna. Hellið rjóma út á ostinn og bræðið allt vel saman. 

Að lokum fer kjúklingurinn aftur í pönnuna og allt látið krauma í nokkrar mínútur.

Hvítlauksbrauð LKL

6 msk. möndlumjöl Funksjonell,

eða 3 msk. kókoshveiti Funksjonell

2 egg

4 dl rifinn ostur

1 tsk hvítlauksduft

Blandið öllu saman í skál, hellið blöndunni á smjörpappírsklædda bökunarplötu og dreifið gróflega úr deiginu. Bakið í ofni í 10-15 mín. á 180 gráðum. Skerið brauðið niður í ferninga og hér má dreypa hvítlauksolíu yfir áður en brauðið er borið fram.

Fljótlegt og gott hvítlauksbrauð og létt í kolvetnum í þokkabót.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.