Skoðun

Höfnin hundrað ára

Hjálmar Sveinsson skrifar
Áttunda mars árið 1913 kom Gufuskipið Edward Grieg til Reykjavíkur og flutti með sér járnbrautarteina, gufulyftara og eimreiðina Minör. Mánuði síðar fór Minör í sína fyrstu ferð í Öskjuhlíðina að sækja grjót. Þá var hafin hafnargerð í Reykjavík. Næstu fjögur árin var Grandagarður lagður út í Örfirisey og svo Ingólfsgarður og Norðurgarður sem mynda mynni gömlu hafnarinnar með gulum vitum á sitt hvorum enda.

Kaupmenn og verslunarstjórar í Kvosinni höfðu um langan tíma hvatt til þess að ráðist yrði í hafnargerðina. Þeir vildu fá örugga höfn sem næst verslunarhúsum sínum og skemmum. Fyrsta áratuginn eftir að hafnargerðinni lauk fimmfaldaðist heildarlestafjöldi skipanna sem komu til Reykjavíkur og vörumagnið fjórfaldaðist. Hafnargerðin í Reykjavík 1913 til 1917 var aðgangsmiði borgarinnar að nútímanum. Sá nútími byggði og byggir umfram allt á iðnvæddri framleiðslu, öflugri verslun og skilvirkum samgöngum.

Höfnin varð þungmiðja atvinnulífs í Reykjavík og um leið miðstöð verslunar og viðskipta í landinu. Skipafélög settu skemmur sínar og höfuðstöðvar niður við höfnina og mörg af stærstu útgerðarfélögum landsins gerðu út frá höfninni og starfræktu fiskvinnslu í stórum stíl. Enn í dag er „Gamla höfnin“ ein öflugasta sjávarútvegshöfn landsins. Við Vesturhöfnina á sér stað verðmætasköpun á heimsmælikvarða í krafti þekkingar, hugvits og hátæknivæddra framleiðslufyrirtækja. Á síðasta ári var um 108 000 tonnum af sjávarafla landað í Reykjavík.

Sundahöfn hefur hins vegar tekið við hlutverki flutningahafnar með háþróaðri upp- og útskipunartækni og gríðarstórum vöruhótelum.

Þríþætt starfsemi

Segja má að hafnargerðinni í Reykjavík hafi aldrei lokið. Eftir 1917 var haldið áfram að koma upp viðleguköntum, byggja nýja bakka og bryggjur og útbúa svæði fyrir atvinnustarfsemi við hafnakantinn. Þannig er það enn þann dag í dag. Hafnarstarfsemin hefur á hverjum tíma þjónað samfélaginu og lagað sig að kröfum nýrra lífshátta og atvinnuhátta

Í dag er starfsemin við höfnina þríþætt. Gegnt sjávarútvegsfyrirtækjunum í vesturhöfninni hefur Harpa risið, glæsilegasta tónleikahús landsins og þótt víðar væri leitað. En við suðurhluta hafnarinnar dafna ferðaþjónustufyrirtæki í kringum hvalaskoðunarferðir. Höfnin er því allt í senn sjávarútvegshöfn, ferðaþjónustuhöfn, afþreyingarhöfn og menningarhöfn. Eitt brýnasta verkefni hafnarstjórnarinnar er að tryggja að þetta skemmtilega sambýli fjölbreytilegrar hafnsækinnar starfsemi gangi sem best fyrir sig.

Í skýrslu sem unnin var fyrr á þessu ári um þróun og atvinnustarfsemi í Gömlu höfninni kemur fram að 193 fyrirtæki eru starfrækt við höfnina.

Mikil fjölgun íbúa á höfuðborgarsvæðinu undanfarna áratugi, stóraukinn innflutningur og útflutningur og efling iðnaðar hefur gert starfsemi hafnarinnar enn umfangsmeiri en áður og sérhæfðari. Fyrirtækið Faxaflóahafnir sf var stofnað 1. Janúar 2005. Það á og rekur fjórar hafnir: Reykjavíkurhöfn, Grundartangahöfn, Akraneshöfn og Borgarneshöfn. Fyrirtækið er sameignarfélag fimm sveitarfélaga: Reykjavíkurborgar, Hvalfjarðarsveitar, Skorradalshrepps, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar.

Í tilefni þess að hundrað ár eru liðin síðan hafnargerðin hófst í Reykjavík samþykkti stjórn fyrirtækisins í ágúst 2011 að ráða Guðjón Friðriksson sagnfræðing til að skrifa sögu Faxaflóahafna. Sagan er nú komin út á bók í tveimur bindum, ríkulega skreyttum ljósmyndum, og heitir „Hér heilsast skipin“. Hún á erindi til allra sem hafa áhuga á verslunarsögu, samgöngusögu, sjávarútvegssögu, atvinnuháttassögu, verkalýðssögu og sögu Reykjavíkur.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×