Audi Q8 e-Tron á að slá út Tesla Model X Finnur Thorlacius skrifar 18. febrúar 2014 10:15 Ekki er víst að þetta sé endanleg útgáfa Q8, enda hugmyndabíll.
Audi vinnur nú að hönnun stórs Q8 jeppa, en ein af drifrásum sem í boði verður í bílnum er aðeins knúin rafmagni. Fyrsti jeppinn af slíkri gerð verður kynntur af Tesla á þessu ári og hefur sá bíll fengið nafnið Tesla Model X. Audi Q8 verður hinsvegar ekki kynntur til sögunnar fyrr en árið 2017, en sá bíll á að slá út Tesla Model X. Hann á að komast 600 kílómetra með fullri rafhleðslu og vera ennþá sprækari en Tesla Model X. Audi Q8 e-Tron mun fá sömu rafmótora og rafgeyma og verða í Audi R8 e-Tron, sem einnig verður framleiddur. Audi Q8 verður 7 manna bíll líkt og Tesla Model X og því eru um stóra bíla að ræða. Audi Q8 verður einnig framleiddur með hefðbundnum brunavélum og eru vélarkostirnir V6 bensínvélar sem skila 230 og 300 hestöflum, 3,0 lítra díslvél sem er 250 hestöfl, 4,2 lítra dísilvél sem er 400 hestöfl og tveggja forþjappa 4,0 lítra bensínvél sem orkar 550 hestöflum og verður hún í S-kraftaútgáfu Q8 bílsins. Audi ætlar einnig að framleiða Audi TT e-Tron bíl, en hann verður tvinnbíll með 2,0 lítra bensínvél og tveimur rafmótorum, en samtals skila þessar aflrásir 402 hestöflum. Sá bíll mun komast fyrstu 50 kílómetrana á rafmagninu einu saman og því mun hann ekkert menga í bæjarakstri, en hefur bæði krafta í kögglum og kemst hvert á land sem er.
Mest lesið „En við munum sjá til þess að allt fari vel“ Erlent Trans hermenn leitaðir uppi og látnir fjúka innan 60 daga Erlent Segja Tate bræður á leið til Bandaríkjanna í einkaþotu Erlent „Að gera þetta svona rétt fyrir sauðburð þykir okkur mjög grimmilegt“ Innlent Skoðaði staðsetningu stúlkunnar hátt í 150 sinnum fyrir árásina Innlent Ölvaður, réttindalaus og með barn í bílnum Innlent Ný þrjátíu milljarða króna álma bætist við Leifsstöð Innlent Ragnar um biðlaun annars formanns: „Hvað gerir þessa gæðinga að svo miklu betri mönnum en okkur?“ Innlent Spyr sig hvort eftirlitsnefnd hafi unnið hratt í „þágu tiltekinnar niðurstöðu“ Innlent „Við þurfum einhvers staðar að draga saman á móti“ Innlent
Ragnar um biðlaun annars formanns: „Hvað gerir þessa gæðinga að svo miklu betri mönnum en okkur?“ Innlent
Ragnar um biðlaun annars formanns: „Hvað gerir þessa gæðinga að svo miklu betri mönnum en okkur?“ Innlent