Innlent

Lög­maður þurfi ekki að hafa á­hyggjur af þekkingu ráð­herra

Bjarki Sigurðsson skrifar
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir er dómsmálaráðherra.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir er dómsmálaráðherra. Vísir/Vilhelm

Dómsmálaráðherra gefur lítið fyrir gagnrýni lögmanns á meinta vanþekkingu hennar á eigin málaflokki. Starfshópur sem hún skipaði til að yfirfara reglur um dvalarleyfi sé mannaður af sérfræðingum í málaflokknum. 

Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær sagði lögmaður sem vinnur að miklu leyti að málum hælisleitenda að enginn í starfshópnum hafi praktíska reynslu af dvalarleyfisumsóknum eða aðkomu að mansalsmálum. Í tilkynningu frá ráðuneytinu um skipun hópsins hafi birst vanþekking dómsmálaráðherra á málaflokknum, en að þar komi meðal annars fram að hér á landi séu ekki sérstök dvalarleyfi fyrir fórnarlömb mansals, sem séu í raun til staðar.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segist ekki efast um færni sína í eigin málaflokki.

„Mér finnst auðvitað leiðinlegt að þarna sé einhver maður sem þjakar á því yfir hátíðirnar hver þekking dómsmálaráðherra er á sínum málaflokkum en ég held að hann geti verið ágætlega öruggur með það. Markmið þessarar vinnu varðandi mansalið, þetta er nú breiðari vinna en svo, er að bregðast við ábendingum frá sérfræðingum í vinnumarkaðsmálum sem hafa bent á óöryggi og óvissu þolenda mansals,“ segir Þorbjörg Sigríður. 

Vaxandi meinsemd

Stærsta mansalsmál Íslandssögunnar, kennt við athafnamanninn Quang Lé, er enn til rannsóknar og í tengslum við það óskaði vinnumarkaðssvið ASÍ eftir því að stigið yrði ákveðið inn í málaflokkinn.

„Ég tók þessari brýningu bara mjög alvarlega. Ég skipaði fólk í hópinn sem hefur mikla sérfræðiþekkingu á þessum málaflokki, og er staðráðin í því að taka vel utan um þolendur mansals. Ég er ekki síður að horfa á þá staðreynd að mansal er vaxandi meinsemd í heiminum öllum. Hún er hluti af skipulagðri brotastarfsemi. Ef við tryggjum ekki öryggi þeirra sem verða fyrir mansali er botninn farinn úr svoleiðis sakamálarannsóknum,“ segir Þorbjörg Sigríður.

Í hópnum séu miklir sérfræðingar.

„Ég ætlaði ekki að skipa í einhvern sautján manna hóp til að sitja óþarflega lengi yfir málunum. Þarna sitja færir lögfræðingar í dómsmálaráðuneytinu, þarna er fulltrúi Útlendingastofnunar, þarna eru sérfræðingar í vinnumarkaðsmálum. Ég tek á engan hátt undir og finnst þetta mjög sérstök athugasemd,“ segir Þorbjörg Sigríður. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×