Beina útsendingu frá umræðunum má sjá hér að neðan.
Fyrst tók til máls Oddný G. Harðardóttir Samfylkingu sem fordæmdi það hvernig málið bar að og hvernig það var sett á dagskrá þingsins. Áður en búið var að ljúka umræðu um skýrslu sem fjallar um aðildarviðræðurnar.
Katrín Júlíusdóttir Samfylkingu taldi þetta lýsandi fyrir það hverjar fyrirætlanir ríkisstjórnar eru og hvernig hún ætlar að bera sig að við þær.
Svandís Svavarsdóttir Vg spurði hvort skýrslan ætti ekki að vera grundvöllur ákvarðanatöku? Hún sagði þetta óásættanlegt og lítilsvirðandi við þingið að þessi skýrsla var skrípaleikur, þingið og þjóðin hafa verið höfð að fífli.
Róbert Marshall Bjartri Framtíð sagði það nú opinberast hverslags pólitískir hryggleysingjar það eru sem skipa þessa ríkisstjórn. Pólitísk lindýr sem ekki þora að fara með þetta mál í þjóðaratkvæðagreiðslu. Gripið til þess ráðs, í skjóli nætur því sem næst, að koma málinu á dagskra: Pólitískt óhæfuverk sem hér er verið að fremja að ekki er hægt að finna samjöfnuð í íslenskri sögu. Bergmál þessa óhæfuverks mun hljóma lengi.
Birgitta Jónsdóttir Pírötum tók undir þetta og sagði um pólitískt óhæfuverk væri að ræða.
Umræðan stendur enn yfir en gerð voru hróp að Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra þegar hann kom í pontu svaraði á þá leið að svo virtist sem stjórnarandstaðan væri að frábiðja sér því að fá tilkynningar um dagskrá.