
Fagfólkið má vita, ekki foreldrarnir
Þetta var einkennileg ákvörðun hjá auknum meirihluta borgarstjórnar og rökstuðningurinn fyrir henni er enn þá furðulegri. Eva Einarsdóttir, fulltrúi Bezta flokksins í skóla- og frístundaráði, sagði í samtali við Fréttablaðið að hvorki skólarnir né nemendurnir hefðu gott af því að „auglýsa hvaða skólar standi sig vel og hverjir illa“ eins og hún orðaði það.
Í bókun meirihluta ráðsins kemur skýrt fram að hann treystir foreldrum ekki fyrir upplýsingum um það hvernig hver og einn skóli kom út úr könnuninni; það sé alveg nóg að fagfólk hafi þær upplýsingar og fjalli um þær. „Fagfólk skólanna ígrundar niðurstöður sinna nemenda og útfærir umbótaáætlun á þeim grunni. Vandséð er hvernig þeim mun ganga betur í þeirri vinnu með því að kjörnir fulltrúar hafi eingöngu áhuga á því að mata fjölmiðla á því hver er bestur og hver er verstur samkvæmt gamaldags sýn þeirra sem telja skólastarf vera keppnisíþrótt,“ segir meirihlutinn.
Þetta er allt saman einhver ógurlegur misskilningur á gildi opinnar stjórnsýslu og að almenningur hafi greiðan aðgang að upplýsingum. Meirihlutinn í borgarstjórn virðist gleyma að skólarnir eru reknir fyrir peninga foreldranna og þeir hljóta að gera kröfu um að útsvarið þeirra sé nýtt með góðum árangri.
Það er orðið almennt viðurkennt að til þess að geta metið gæði opinberrar þjónustu verða að liggja fyrir mælingar á árangri hennar. Það er algjörlega galið að segja að þegar slíkar mælingar liggi fyrir eigi þær eingöngu að vera aðgengilegar starfsmönnum kerfisins, en ekki notendunum. Embættismennirnir eru í þjónustu skattgreiðenda og verða að lúta aðhaldi frá almenningi, hvort sem þeim líkar betur eða verr.
Þegar rætt er um að birta samanburð á skólum, til dæmis útkomu í lesskimunarprófum eða samræmdum prófum, er oft bent á að það sé ójafnt gefið; skólar í hverfum þar sem tekjur eru lægri, menntun minni og margir innflytjendur komi til dæmis verr út en aðrir. Það er rétt og verður að taka tillit til þess. En það er ekki hægt að útskýra burt allan mun á skólum með slíkum félagslegum þáttum, af því að við vitum að kennarar eru misgóðir, skólastjórnendur eru misgóðir og skólar eru misgóðir. Með slíkri nálgun er búið að fjarlægja þann hvata til að gera betur sem allir þurfa á að halda.
Í tillögu sjálfstæðismanna er bent á alþjóðlegar rannsóknir sem sýna fram á að kostir sjálfstæðis skóla nýtist illa ef upplýsingar um árangurinn eru ekki tiltækar foreldrum og skólasamfélaginu. Þetta liggur raunar í augum uppi. Stjórnendur skóla eiga ekki bara að hafa sjálfstæði til að gera það sem þeim finnst sniðugt, heldur hljóta þeir að þurfa að hlusta á viðskiptavini sína, foreldra nemendanna.
Með því að halda niðurstöðum PISA-könnunarinnar leyndum er nefnilega verið að skrúfa fyrir mikilvæga auðlind, sem er aðhald frá foreldrum skólabarna. Í þeim hópi eru margir sem vita sínu viti, ekkert síður en fagfólkið í skólunum.
Skoðun

Það er kominn tími til...
Birgir Rúnar Davíðsson skrifar

Er EES samningurinn gagnlaus fyrir Ísland?
Sigurbjörn Svavarsson skrifar

Er píptest rót alls ills?
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Vertu bandamaður kæri bróðir!
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Frá frammistöðuvæðingu til farsældar
Helga Þórey Júlíudóttir skrifar

Ísland á að verja með íslenskum lögum
Arnar Þór Jónsson skrifar

Fyrsta skrefið í átt að betri Menntasjóði
Logi Einarsson skrifar

Læknafélagið virðir ekki afstöðu félagsmanna sinna
Bjarni Jónsson skrifar

Göngum í takt
skrifar

Hverju lofar þú?
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir skrifar

Það er vá fyrir dyrum - Börnin okkar
Svava Þ. Hjaltalín skrifar

Hvert er eðli innflutningtolla? – Hvað er Trump eiginlega að gera? - Hverjir munu líða mest?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Sagnaarfur Biblíunnar - Babýlonherleiðingin og örlög smáþjóða í átökum heimsvelda
Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Fjölgun hjartasjúkdóma og aukið álag á spítalana í boði Carnivore bylgjunnar?
Guðrún Nanna Egilsdóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar

Allt að vinna, engu að tapa!
Helga Rakel Rafnsdóttir,Margrét M. Norðdahl skrifar

Fiskurinn í blokkunum
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar

Snýst núverandi staðsetning Reykjavíkurflugvallar um öryggi… eða mögulega eitthvað annað
Daði Rafnsson ,Kristján Vigfússon ,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar

Þegar vald óttast þekkingu
Halla Sigríður Ragnarsdóttir skrifar

Með hjúkkuna upp í rúm og lækninn í vasanum
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Hverjir eiga Ísland?
Jón Baldvin Hannibalsson skrifar

Komum náminu á Höfn í höfn
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Betra líf eftir greiningu krabbameins, tímamótarannsókn sem vísar veginn
Sigríður Gunnarsdóttir skrifar

Veiðigjöld vs afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamatsskyldu
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Tollar – Fyrir hverja?
Valdimar Birgisson skrifar

Þau eru fá en þörfin er stór
Sif Huld Albertsdóttir skrifar

Samvinnufélög, valkostur í atvinnurekstri
Elín H. Jónsdóttir,Guðrún Johnsen skrifar

Leiðin til helvítis
Jón Pétur Zimsen skrifar

Eitruð kvenmennska
Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Hinn nýi íslenski aðall
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Samningur HSÍ við Rapyd – Opið bréf til frambjóðenda í formannskjöri
Hópur stuðningsmanna Íslands í handbolta skrifar