Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að mikilvægt sé að útkallsaðilar fái frið til að sinna sínu erfiða verkefni. Fólk sé því beðið um að halda sig vel frá vettvangi.
Reykkafarar hafa verið sendir inn í húsnæði Fannar í Skeifunni en þeir vita þó ekki nákvæmlega hvað bíður þeirra þar innandyra. Hefur slökkvistarf að miklu leyti byggst á því að takmarka útbreiðslu eldsins sem átti upptök sín í þvottahúsi Fannar.
Bensínstöð Atlantsolíu er rétt við brunasvæðið og sömuleiðis er verslun Olís í Skeifunni, Rekstrarland, með ýmsar vörur til sölu.
Slökkviliðsmenn af höfuðborgarsvæðinu glíma við eldinn og njóta liðsinnis félaga sinna úr slökkviliðinu á Suðurnesjum að því er Víkurfréttir greina frá.
Tveir slökkvibílar frá Slökkviliðinu á Suðurnesjum hafa verið sendir til höfuðborgarinnar auk eins sjúkrabíls. Reykjarmökkinn má sjá allt frá Akranesi suður í Reykjanesbæ.
Slökkviliðsmenn virðast hafa náð að hefta útbreiðslu brunans og vinna nú að því að ráða niðurlögum hans.
Iceland is burning down #iceland #bruni pic.twitter.com/tBA0hplpJQ
— alexandra ivalu (@alexandraivalu) July 6, 2014