Matur

Fyllt vefja með eggjum, kjúklingi og fetaosti

Rikka skrifar

Í Léttum sprettum í gær bjó Rikka til frábæra og gómsæta vefju sem einfalt er að leika eftir. 

Fyllt vefja með eggjum, kjúklingi og fetaosti

fyrir 2



1 msk ólífuolía

2 meðalstórir sveppir, saxaðir

50 g eldaður kjúklingur

1/2 tsk karrý

handfylli spínat

1 msk þurrkuð trönuber

1 egg

1 eggjahvíta

1 msk fetaostur, mulinn

salt og nýmalaður pipar

2 tortillavefjur

Steikið sveppina upp úr olíunni á meðalheitri pönnu og bætið kjúklingnum ásamt karríinu saman við. Setjið spínatið saman ásamt trönuberjunum og steikið þar til að spínatið er orðið mjúkt. Hrærið saman eggin og setjið út á pönnuna ásamt fetaostinum. Kryddið með salti og pipar. Hitið tortilla vefjur á pönnunni og fyllið þær með eggjafyllingunni.


Tengdar fréttir

Hollar amerískar pönnukökur

Hollar og bragðgóðar amerískar pönnukökur sem einfalt er að búa til og tilvaldar í brönsinn um helgar eða á sparídögum

Fljótlegar og girnilegar omelettumúffur

Í Léttum sprettum í gær bjó ég til fljótlegar og girnilegar omelettumúffur sem eru að auki bráðhollar og gott að eiga til í ísskápnum.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.