Karamellubollakökur með Dumle-kremi
Kökur
2 stór egg
4 dl sykur
4 msk karamellusósa
2 tsk lyftiduft
2 tsk vanillusykur
150 g smjör
2 dl mjólk
5 1/2 dl hveiti
Dumle-krem
2 egg
200 g flórsykur
100 g smjör
200 g súkkulaði
1 poki Dumle-karamellur
Hitið ofninn í 180°C. Hrærið egg og sykur vel saman. Blandið því næst karamellusósu, lyftidufti og vanillusykri saman við. Bræðið smjör og blandið því saman við mjólkina. Blandið smjörblöndunni við eggjablönduna til skiptis við hveitið þar til blandan er laus við kekki. Setjið deigið í möffinsform og bakið í 15 til 20 mínútur. Kælið kökurnar áður en kremið fer á.
Þegar búa á til kremið hrærið þið egg og flórsykur vel saman. Bræðið smjörið og bætið súkkulaðinu og Dumle-karamellunum saman við. Hrærið þar til allt er bráðið og blandað vel saman. Kælið blönduna aðeins og hrærið henni saman við eggjablönduna. Setjið kremið í ísskáp þar til það er orðið nógu stíft til að skreyta kökurnar með.
Fengið hér.