Staðsetning Íslands gefur mikla möguleika Svavar Hávarðsson skrifar 22. janúar 2014 07:00 Kínverski ísbrjóturinn Snædrekinn hafði viðkomu í Reykjavík á siglingu frá Asíu til Bandaríkjanna.
Vegna staðsetningar sinnar er Ísland í lykilstöðu þegar að því kemur að siglingaleiðir á norðurslóðum opnast. Siglingaleiðin hefur hins vegar enga raunverulega þýðingu í nánustu framtíð.Sturla Henriksen, formaður Samtaka norskra skipaeigenda, segir í viðtali við Fréttablaðið að opnun siglingaleiða á norðurslóðum verði mjög mikilvægar í heimsviðskiptum þegar fram líða stundir, og Ísland muni spila þar stórt hlutverk ef rétt er haldið á spilum. Hann telur því að hugmyndir um framtíðarhlutverk Íslands sem miðstöðvar í viðskiptum og öryggismálum vegna opnunar siglingaleiða vegna loftslagsbreytinga séu raunhæfar. „Lega landsins skiptir hér öllu máli. Ísland er hliðið að Evrópu, má segja, fyrir vöruflutninga frá Asíu og það sama má segja um siglingar til Bandaríkjanna. Ég held að Íslendingar geti nýtt sér þær breytingar sem eru að verða á norðurslóðum á fjölbreytilegan hátt,“ segir Henriksen. „Það er ekki langt síðan að kínverski ísbrjóturinn Snædrekinn sigldi þessa leið með viðkomu í Reykjavík, og það er engin tilviljun í samhengi við aukin umsvif á norðurslóðum.“ Hann segir að fleira muni hafa áhrif á Íslandi „Umsvif olíufyrirtækja eru eitt og ekki síður fyrirtækja sem hyggja á námugröft á hafsbotni á norðurslóðum. Þá eru ónefndar siglingar farþegaskipa og fleira. Eins er svæðið mikilvæg matarkista og ríkt af náttúruauðlindum sem verða nýttar, og mikið af þeim verða fluttar í vesturátt og þá framhjá Íslandi. Ísland er gríðarlega vel staðsett í þessari mynd allri og aðeins spurning um framtak hvernig það verður nýtt á bestan hátt,“ segir Henriksen. Hann hélt erindi á Arctic Frontiers ráðstefnunni sem þessa dagana er haldin í áttunda sinn í Tromsö í Noregi.Sturla HenriksenSpurður um hugmyndir Íslendinga um alþjóðlega björgunarmiðstöð á Íslandi, en Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, vék að undirbúningi hennar á ráðstefnunni á mánudag, telur Henriksen það renna í sama farvegi. Leit- og björgun, og móðurstöð vegna umhverfisógna séu hluti af möguleikum Íslands til að nýta sér þær breytingar sem eru að verða. Hér á Íslandi er rökrétt, að hans mati, að veita þjónustu vegna aðgerða, ef til umhverfisslyss kemur. Þar komi til hafnsækin þjónusta af öllu tagi; viðgerðir, birgðir og önnur þjónusta. Henriksen sagði í erindi sínu á ráðstefnunni að þessar breytingar séu ekki efst í huga skipafyrirtækjanna. Á síðasta ári fóru 70 skip um nýju norðaustursiglingaleiðina á milli Asíu og Evrópu. Á sama tíma fóru 18 þúsund skip um Súez-skurðinn og önnur 14 þúsund um Panamaskurðinn. Hann minnti ráðstefnugesti líka á þá staðreynd að 90% af öllum vöruflutningum heimsins fara sjóleiðina og því væri þjónusta skipafyrirtækjanna einn mikilvægasti þátturinn í tilveru nútímamannsins. „Það er auðvitað spennandi að geta stytt siglingaleið á milli Asíu og Evrópu um þriðjung. Við teljum hins vegar að þessi siglingaleið muni ekki skipta miklu máli í heimsviðskiptum um fyrirsjáanlega framtíð og miklu frekar er ástæða til að hugsa um hversu erfið siglingaleiðin er og hvað er við að glíma í því samhengi,“ sagði Henriksen og tiltók sérstaklega hversu viðkvæm náttúran er á svæðinu og ekki mætti gleyma að á henni byggi fjöldi fólks tilveru sína og slys geti haft alvarlega þýðingu fyrir þau. Í þessu samhengi segir Henriksen í viðtali við Fréttablaðið að það sé með hreinum ólíkindum að engar sérstakar reglur eru í gildi vegna siglinga á norðurslóðum, sem án efa séu þær erfiðustu í heimi. Sömu reglur gildi um siglingar í Miðjarðarhafi og Norður-íshafinu. Hins vegar standa yfir fundir í London í þessari viku á vettvangi Alþjóða siglingamálastofnunarinnar þar sem reynt er að koma saman sérstökum reglum fyrir siglingar á norðurslóðum. Spurður hvort þetta þýði að skip sigli þessa leið án þess að vera sérstaklega til þess búin segir Sturla að hann þekki þess engin dæmi. Hins vegar sé það grafalvarlegt, og í raun óþolandi, að ekki hafi verið sett niður á blað á vettvangi alþjóðastofnana hvaða skilyrði menn þurfa að uppfylla til þess að sigla um á þessu erfiðasta hafsvæði heims. Arild MoeNorðurslóðirnar ekki einsleitt svæðiArild Moe, aðstoðarforstjóri Fridtjof Nansens stofnunarinnar, sem er sjálfstæð rannsóknarstofnun í umhverfis- og orkumálum, sagði í sínu erindi að tækifærin á norðurslóðum væru fjölmörg; vinnsla olíu og gass, siglingar, námugröftur, ferðaþjónusta og fiskveiðar. Hins vegar sé það einfaldlega rangt að mikið sé að gerast á landsvæðum sem falla undir norðurskautið, og eru víðáttumikil – í raun væri langstærsti hluti þeirra umsvifa í norska hluta Barentshafsins. Hann sagði að það sé mikið ósamræmi á milli þeirra umsvifa sem þegar eru til staðar, og þeirra sem menn spá að verði, og reglna um öryggi á norðurslóðum. Þess vegna sé tómt mál um að tala að norðurslóðir geti tekið við öllum þeim umsvifum sem fyrirsjáanleg eru og þess vegna verði að setja reglur; ekki síst um öryggismál og umhverfislega þætti. Eins sagði Moe að svæðið sé gríðarstórt og reglur verði að taka tillit til þess. Öryggisreglur á einum stað séu marklausar á öðrum og þurfi að sníða eftir hverju landsvæði fyrir sig. „Menn tala gjarnan um norðurslóðir sem eitt svæði, þegar í raun er um að ræða mörg ólík svæði sem sum hver eiga fátt sameiginlegt,“ sagði Moe og bætti við að taka þurfi tilliti til sérstöðu einstakra svæða, sérstaklega vegna öryggis- og umhverfismála. Moe sagði einnig að fjölmörg verkefni séu aðkallandi. Hvað varðar siglingar þá verði að setja reglur, og vísaði til orða Sturlu Henriksen. Eins verði að þjálfa fólk sérstaklega til að geta mætt aðstæðum á norðurslóðum. Eins þurfi fyrirtæki og stofnanir að leggja í kostnað við að nýta bestu fáanlegu tækni til siglinga og það sama eigi við um fjarskipti. Þá sé eftir að kortleggja norðurslóðir svo vel sé, en þar vantar mikið uppá. „Við setjum stórt spurningarmerki við siglingar stórra farþegaskipa á þessu svæði. Hér vantar mikið uppá að öryggismál séu í ásættanlegu lagi. Við teljum mikilvægt að menn átti sig á að á meðan öryggisreglur eru ekki settar gæti komi til meiriháttar slys á svæðinu, og því verða allir sem hafa hagsmuna að gæta að setjast niður og ræða hvort mögulegt er að bregðast við meiriháttar slysi á þessum slóðum,“ sagði Moe.
Fréttaskýringar Mest lesið „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Innlent Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Innlent Fer fram á stjórnsýsluúttekt á aðdraganda lokunarinnar Innlent Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Innlent Samþykktu að breyta skráningu svo þiggja megi styrki Innlent „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Innlent Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Erlent Fleiri fréttir Velta barna á veðmálasíðum fimmfaldast milli ára Veðmál barna og verslunarmiðstöð í Vogum Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Segir málefnasamninginn ófjármagnað orðagjálfur Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Vilja skýrslu frá ráðherra um lokun flugbrautar Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Tíu ára stelpa frá Vík í úrslitum í Eurovision barna í Danmörku Samþykktu að breyta skráningu svo þiggja megi styrki Fer fram á stjórnsýsluúttekt á aðdraganda lokunarinnar Stjórnsýsluúttekt á lokun flugbrautarinnar og endurgreiðsla styrkja Skora á fulltrúa sveitarfélaganna að greina frá sinni afstöðu „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Kennarar gengu út og nýr borgarstjórnarmeirihluti Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður „Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Svona skipta oddvitarnir stólunum Voru búin að segja að þeim hugnaðist ekki tillaga Ástráðs Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur“ Skilur vel reiðina sem blossi upp Útganga kennara kom formanninum í opna skjöldu Gátu ekki lent í þoku í Osló því flugmenn eru enn í þjálfun á Airbus Sjá meira