„Það eru allir svo sætir með þetta að ég er rosalega glöð að sjá fólk með böndin,“ segir Hulda Dögg Atladóttir sem hannar fléttuböndin vinsælu ásamt Lindu Ósk Guðmundsdóttur.
Þær reka verslunina Leynibúðina á Laugavegi og hanna föt og fylgihluti undir merkinu Deathflower. Þegar talið berst að nafninu svarar Hulda Dögg: „Við vorum með sitthvort merkið áður en við fórum í samstarf en skeyttum saman áherslur okkar. Linda Ósk var mikið að vinna með svarta liti og var á kafi í hauskúpum á meðan ég var upptekin af litum og blómum.“
Fléttuböndin eru gerð úr kjólavelúr. Þau eru teygjanleg og fást í fjölmörgum litum í Leynibúðinni en einnig í versluninni Kistu á Akureyri, Fantom í Hafnarfirði, Tivo á Selfossi og Kaupmanninum á Ísafirði.

