Matur

Auðveldir ostakökubitar

LIlja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ekki bara gott heldur líka augnayndi.
Ekki bara gott heldur líka augnayndi.

Nú er berjatíminn byrjaður og um að gera að nýta berin í eitthvað gómsætt. Sumir vilja ef til vill breyta til og nota bláberin öðru vísi en bara með sykri og rjóma og því eru þessir litlu bitar algjörlega tilvaldir.

Ostakökubitar með bláberjum

Rjómaostur

Hafrakex

Fersk bláber (hér er hægt að nota hvaða ávöxt sem er)

Hunang eða agave-síróp



Smyrjið hafrakexið með rjómaosti og raðið bláberjunum fallega ofan á. Hellið síðan smá af hunangi eða sírópi ofan á og njótið með bestu lyst.

Þessir bitar myndu líka sóma sér vel sem smáréttur í hvaða veislu sem er.

Fengið hér.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.