Spá Fréttablaðsins og Vísis: Leiknir hafnar í 12. sæti 20. apríl 2015 09:00 Brynjar Hlöðversson, miðjumaður Leiknis, kyssir kærustu sína eftir að liðið komst upp síðasta haust. vísir/valli
Fréttablaðið og Vísir telur niður í Pepsi-deild karla í knattspyrnu með árlegri spá sinni. Íslandsmótið hefst 3. maí og þar á Stjarnan titil að verja eftir að verða meistari í fyrsta skipti í sögu félagsins. Fréttablaðið og Vísir spáir nýliðum Leiknis tólfta sætinu og þar með falli niður í 1. deild á ný. Þetta er í fyrsta skipti í sögu félagsins sem Leiknir spilar í efstu deild, en það vann 1. deildina í fyrra afar örugglega. Þjálfarar liðsins eru Leiknismennirnir Freyr Alexandersson og Davíð Snorri Jónasson. Freyr, sem hefur áður verið aðstoðarþjálfari karlaliðs Vals og aðalþjálfari kvennaliðsins, er einnig landsliðsþjálfari kvenna. Davíð verður yngsti þjálfarinn í deildinni í sumar. LÍKLEGT BYRJUNARLIÐ:graf/garðarEINKUNNASPJALDIÐ Vörnin: 2 stjörnur (af 5) Sóknin: 1 stjarna Þjálfarinn 2 stjörnur Breiddin: 1 stjarna Liðsstyrkurinn: 1 stjarna Hefðin: 1 stjarnaKolbeinn Kárason, Óttar Bjarni Guðmundsson og Hilmar Árni Halldórsson.vísir/andri marinó/arnþór ÞRÍR SEM LEIKNIR TREYSTIR ÁÓttar Bjarni Guðmundsson: Þessi efnilegi miðvörður er lykilmaður í varnarleik Leiknisliðsins. Hann er stór og sterkur með mikinn leikskilning og spilar með hjartanu eins og allir Leiknismenn. Leiknisliðið mun verjast mikið í sumar og því mun mikið á honum mæða. Fljótlega gæti fólk farið að taka eftir þessum efnilega leikmanni.Hilmar Árni Halldórsson: Besti leikmaður 1. deildar í fyrra ber uppi sóknarleik Leiknismanna. Hann er fljótur, sterkur, áræðinn með frábært auga fyrir spili og góðan skotfót. Eins og allir 1. deildar spilarar þarf hann að sanna sig í efstu deild, en líkt og margir aðrir leikmenn í Leiknisliðinu býr hann yfir mikilli reynslu í meistaraflokki þar sem hann byrjaði að spila snemma.Kolbeinn Kárason: Framherjinn stóri fær nú væntanlega tækifæri til að byrja alla 22 leikina og spila 90 mínútur ef hann stendur sig. Það er enginn stærri fiskur sem bíður eftir því að synda í tjörninni. Kolbeinn hefur vaxið með hverjum leik á undirbúningstímabilinu og getur gert mikinn usla með krafti sínum. Nú verður hann að fara að skora mörk.Frymezim Veselaj í leik gegn Gróttu.vísir/pjeturNýstirnið: Frymezim Veselaj Uppalinn Leiknisstrákur af albönskum uppruna fæddur árið 1995. Hefur komið gríðarlega sterkur inn í liðið á undirbúningstímabilinu og breytt leikjum með innkomum sínum. Svakalega fljótur og marksækinn. Leikmaður sem mun gefa öllum bakvörðum deildarinnar hausverk á komandi tímabili.vísir/arnþór MARKAÐURINNKomnir: Elvar Páll Sigurðsson frá Breiðabliki Halldór Kristinn Halldórsson frá Keflavík Charley Fomen frá Senegal Arnar Freyr Ólafsson frá Fjölni Atli Arnason frá Tindastóli Kolbeinn Kárason frá ValFarnir: Andri Fannar Stefánsson í Val (Var á láni) Sævar Freyr Alexandersson í Aftureldingu Vigfús Arnar Jósepsson hættur Brandon Scott Matt Horth Leiknismenn geta verið þokkalega ánægðir með viðskiptin á félagaskiptamarkaðnum. Liðið missti reynslubolta í Vigfúsi Arnari Jósepssyni og þá var Bandaríkjamaðurinn Brandon Scott nokkuð öflugur. Það fékk á móti miðvörðinn Halldór Kristinn Halldórsson heim sem kemur með Pepsi-deildar reynslu í varnarleikinn og bakvörðinn Charley Fomen sem er naut af burðum og ætti að styrkja varnarleik liðsins. Einnig bættu Leiknismenn við sig tveimur framherjum sem aldrei hafa fengið alvöru tækifæri í efstu deild; Kolbeini Kárasyni og Elvari Páli Sigurðssyni. Það er ekki hægt að bóka að þeir eldi markasúpu í sumar en þetta er staða sem Leiknismenn þurftu að styrkja sig í. Og þeir fengu tvo framherja. Í heildina gerði Leiknir vel á markanum. HVAÐ SEGIR SÉRFRÆÐINGURINN?Hjörvar Hafliðason hefur í sex ár verið einn helsti sparkspekingur landsins þegar kemur að Pepsi-deildinni. Hann spilaði með HK, Val og Breiðabliki í efstu tveimur deildum Íslandsmótsins á tíu ára ferli. Hjörvar verður einn af þremur sérfræðingum Pepsi-markanna í sumar, en þetta er fimmta árið hans í þættinumDavíð Snorri Jónasson og Freyr Alexandersson.vísir/valli STYRKLEIKAR LIÐSINS: Samheldni, barátta og hjarta. Mörg lið stæra sig af því að spila með hjartanu en það eru fá lið eins og Leiknir þegar kemur að því. Stærsti hluti hópsins hefur verið saman lengi enda tóku Leiknismenn ákvörðun um það að komast í efstu deild á eigin strákum. Liðið er skipulagt og berst til síðasta flauts. Það verða ekki mörg lið sem verða yfir í baráttunni gegn Leiknismönnum.VEIKLEIKAR LIÐSINS: Leiknir sem félag hefur enga reynslu af því að spila í efstu deild. Annar þjálfarinn, Freyr Alexandersson, hefur verið aðstoðarþjálfari í Pepsi-deildinni og nokkrir leikmenn eiga þar leiki. Breiddin er lítil sem engin hjá liðinu og verður það að treysta á að lykilmenn haldist heilir. Munurinn á byrjunarliðinu og varamönnunum er mikill.Eyjólfur Tómasson, markvörður, fagnar Pepsi-deildar sætinu.vísir/valli BINNI BJARTSÝNI SEGIR: Við höldum okkur uppi. Þetta snýst ekki um að vinna alla leikina heldur réttu leikina. Við getum hæglega unnið lið eins og ÍBV, ÍA, Fjölni og Keflavík á okkar heimavelli. Og talandi um heimavöllinn; hann verður okkar vígi. Svo lengi sem allir haldist heilir erum við betri en 2-3 lið í deildinni og því verðum við áfram á meðal þeirra bestu.SIGGI SVARTSÝNI SEGIR: Þú vanmetur reynsluna af úrvalsdeildinni sem er engin. Nýliðar sem eru að koma upp í fyrsta sinn falla oftar en ekki alltaf beint niður aftur þó það sér ekkert algilt. Það má ekkert út af bregða þannig við lendum ekki í vandræðum vegna breiddarinnar. Við munum berjast og gæða deildina lífi, en liðið er ekki nógu gott til að vera áfram í efstu deild. Við eigum bara að njóta, en ekki búast við neinu.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Fótbolti Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Körfubolti „Pínu erfitt að hlæja að Kára“ Sport Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Fótbolti Þrjátíu persónulegar bætingar á MÍ og Eir Chang tvöfaldur meistari Sport Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn Fleiri fréttir Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Vestri fær bakvörð frá Svíþjóð KR lánar Óðinn til ÍR Sjáðu fimm marka flengingu frá meisturunum Gylfi fyrirliði í jafntefli á Akranesi Sjá meira