Þorsteinn B. Friðriksson, stofnandi og forstjóri Plain Vanilla sem gefur út Quiz-Up sagði í Klinkinu í Íslandi í dag á Stöð 2 að það hafi verið hálfgert menningarsjokk að fara til Kína að vinna að útgáfu leiksins þar.
Sjá viðtalið í meðfylgjandi myndskeiði.
Þorsteinn segir að gjörbreyta hafi þurft öllu viðmóti leiksins þannig að hann hentaði fyrir Kínamarkað. Öll grafík leiksins er til að mynda allt öðruvísi en í Quiz-Up á Vesturlöndum sem 35 milljónir manna hafa sótt frá því leikurinn kom fyrst út í nóvember árið 2013.
Leikurinn er gefinn út í Kína í samstarfi við Tencent Holdings, einn stærsta hluthafa Plain Vanilla. Tencent á og rekur samfélagsmiðillinn WeChat, sem er sá stærsti í Kína en hvorki Facebook né Twitter eru aðgengilegir á Kínamarkaði.
Reyndar verða nýjar leiðir í tekjuöflun með útgáfu Quiz-Up, sem mun heita We-Quiz í Kína. Þannig verður notendum leiksins gert kleift að kaupa ýmsar vörur og þjónustu í gegnum leikinn sjálfan. Eins og ýmsar viðbætur við leikinn. Þannig munu notendur geta keypt stafræna ávexti og grænmeti til að grýta í skjá keppinauta í leiknum meðan á leik stendur til að trufla þá meðan þeir svara spurningum innan gefins frests.
Á Vesturlöndum hefur helsta tekjumódel leiksins hins vegar grundvallast á samningum við fyrirtæki sem hafa kostað nýja spurningaflokka fyrir leikinn. Plain Vanilla gerði til dæmis samning við HBO um spurningaflokka í tengslum við nýjar seríur af þættinum vinsæla Game of Thrones og sambærilegir samningar hafa verið gerðir við Google og Coca Cola og ESPN á Indlandi í tengslum við umfjöllun um krikket, sem nýtur gríðarlegra vinsælda þar í landi.
Þorsteinn sagði í Klinkinu að enn væri þó nokkuð í að Plain Vanilla færi að skila hagnaði og hluthöfum raunverulegri arðsemi en auk stofnenda eru það Tencent Holdings, eins og áður segir, og fjárfestingarsjóðurinn Sequoia Capital í Kaliforníu.
Fékk vægt menningarsjokk við opnun Quiz-Up í Kína
Þorbjörn Þórðarson skrifar
Mest lesið

Jaguar Land Rover stöðvar sendingar vegna tollahækkana
Viðskipti erlent

Kínverskir ferðamenn aldrei fleiri: Beint flug hefjist von bráðar
Viðskipti innlent


Eldrauð Kauphöll: Bandaríkjamenn horfi fram á lakari lífskjör
Viðskipti innlent

Lítið sem ekkert fékkst upp í kröfur í þrotabú bakarísins
Viðskipti innlent

Guðmundur í Brimi nýr formaður
Viðskipti innlent

Leiðtogar ESB íhuga háa sekt á X og Musk
Viðskipti erlent

Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent

Verðfall á Wall Street
Viðskipti erlent

Sættast við Fjármálaeftirlitið og greiða fimmtán milljóna sekt
Viðskipti innlent