Sigríður Eyþórsdóttir hlaut Verðlaun Jóns Sigurðssonar á hátíð hans sem haldin var í Jónshúsi í Kaupmannahöfn í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu Alþingis. „Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, setti hátíðina og afhenti Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta,“ segir í tilkynningunni.
Verðlaunin hlaut Sigríður fyrir framlag sitt til Íslandskynningar í Danmörku með bókmenntakynningum og tónlistarflutningi en hún er tónlistarmaður og kórstjóri. „Þá hefur Sigríður látið mikið til sín taka á fjölbreyttu sviði menningar- og félagsmála meðal Íslendinga í Kaupmannahöfn og nágrenni á undanförnum árum og verið öflugur málsvari menningartengdrar starfsemi í Jónshúsi,“ sagði jafnframt í tilkynningunni.
„Aðalræðumaður á hátíðinni var Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, og flutti hann erindi sem hann nefndi Hugsjónir og peysuskapur. Ræðuna má lesa í heild sinni hér.
Verðlaunin hafa áður hlotið:
2014: Bertel Haarder, fyrrverandi menntamálaráðherra Danmerkur.
2013: Erling Blöndal Bengtsson, sellóleikari.
2012: Pétur M. Jónasson, vatnalíffræðingur og prófessor emeritus.
2011: Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands.
2010: Søren Langvad byggingarverkfræðingur og forstjóri.
2009: Erik Skyum-Nielsen bókmenntafræðingur og þýðandi.
2008: Guðjón Friðriksson sagnfræðingur.
Alþingi veitir Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta í minningu starfa hans í þágu Íslands og Íslendinga. Þau hlýtur hverju sinni einstaklingur sem hefur unnið verk er tengjast hugsjónum og störfum Jóns Sigurðssonar. Þau verk geta verið á sviði fræðistarfa, viðskipta eða mennta- og menningarmála.“ Þetta kemur fram í tilkynningunni. Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar er að finna á vef Jónshúss.
Sigríður Eyþórsdóttir hlaut Verðlaun Jóns Sigurðssonar
Nanna Elísa Jakobsdótitr skrifar
