Fagna tíu ára afmæli Systematic Records 6. júní 2015 17:45 Marc Romboy er þekktur tónlistarmaður og plötusnúður.
Það verður mikið fjör á skemmtistaðnum Paloma í Naustinni í kvöld þar sem 10 ára afmælispartý Systematic Recordings verður haldið. Sunnudagsklúbburinn heldur veisluna fyrir Systematic og mun stofnandi útgáfunnar, Marc Romboy, meðal annars koma fram. „Hinn þýska Romboy þarf vart að kynna fyrir dansþyrstum Íslendingum, enda hefur þessi þekkti tónlistarmaður og plötusnúður heimsótt klakann nokkrum sinnum áður og hefur svo sannarlega unnið sér inn hinn vafasama titil Íslandsvinur með miklum sóma,“ kemur fram í tilkynningu frá Sunnudagsklúbbnum.Systematic Recordings útgáfan hefur verið ötul frá stofnun.Með Marc kemur einnig fram vinur hans, tónlistarmaðurinn Namito, sem gefið hefur út á Systematic sem og fleiri útgáfum eins og Kompakt og Yoshitoshi. Þess má til gamans geta að hann gerði frábæra endurhljóðblöndun af laginu Hold you með GusGus. Einnig koma fram í kvöld Sunnudagsklúbbssnúðarnir Frimann, Bensol, Intro Beats og að sjálfsögðu Formaður Sunnudagsklúbbsins. Marc Romboy hefur verið starfandi í neðanjarðarteknó- og house-senunni í yfir tuttugu ár og gefið út hjá ekki ómerkari útgáfum en Planet E og 20/20 Vision o.fl. í gegnum tíðina. Árið 2004 stofnaði hann sína eigin útgáfu, Systematic Recordings, og hefur útgáfan verið ötul frá stofnun. Listamenn á snærum útgáfunnar eru til dæmis Stephan Bodzin, Blake Baxter, Booka Shade og að sjálfsögðu Marc sjálfur.
Tónlist Mest lesið Lifir lífinu við óbærilegan sársauka Lífið Með stóra drauma og svarta beltið í taekwondo Lífið Fréttatía vikunnar: Landsfundur, körfubolti og geimferðir Lífið Dýrmætt að fá að hitta hetjurnar á hinum enda línunnar Lífið Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Lífið Hafði ekki hugmynd um að einstakt hjól sitt væri týnt Lífið Úrval Útsýn færir landsmönnum sól og gleði í 70 ár Lífið samstarf Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Lífið Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Lífið Einföld ráð fyrir glæsilegra heimili Lífið Fleiri fréttir „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Þessi eru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna Bein útsending: Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna Draumurinn rættist að syngja með Bubba Gekk 20 metra á 35 mínútum í tíu gráðu frosti The Smashing Pumpkins til Íslands Þau fóru áfram í úrslit söngvakeppninnar Sjá meira