Morgun og kvöldvakt gáfu samtals 71 lax Karl Lúðvíksson [email protected] skrifar 8. júlí 2015 09:00 Mikil veiði er í Norðurá þessa dagana Mynd: www.nordura.is
Það er óhætt að segja að það sé góður gangur í Norðurá en mikill kraftur er í göngunum í ánna. Á hádegi í gær voru komnir 540 laxar á land sem er frábær veiði með tilliti til að heildarveiðin í fyrra var 924 laxar. Í gær fengum við þær fregnir frá Einari Sigfússyni að tvær vaktir hafi tekið 71 lax og mikið slapp þar sem tökurnar eru mjög grannar í því blíðskaparveðri sem hefur leikið um Borgarfjörðinn. "Það er svakalega mikið líf í ánni og frá Laxfossi og niður er hún bara blá af laxi og það er stanslaust að ganga inn fiskur" sagði Einar Sigfússon þegar við spjölluðum við hann. Veiðimenn sem hafa verið að koma úr ánni taka undir þetta og nú bíða menn spenntir eftir því að laxinn fari að ganga í meiri mæli upp Glanna en þá verður efra svæðið í Norðurá vel virkt. Miðað við gang mála er því alveg óhætt að spá því að Norðurá gæti endað í 1400-1500 löxum í sumar sem verður miðað við gang mála í dag að teljast ansi hógvær spá.
Mest lesið Góð rjúpnaveiði um allt land í gær Veiði SVFR: Vefsalan hafin Veiði 100% meiri laxveiði en í fyrra Veiði RISE fluguveiði- hátíðin fer fram 14. apríl Veiði Vatnsleysi gerir laxveiðina erfiða Veiði Fín veiði í nettustu á landsins Veiði Dræmt á efstu svæðum Blöndu Veiði Blanda komin í 3561 lax Veiði Þrjár vikur í rjúpnaveiðina Veiði Opnunarhollið í Norðurá auglýst til sölu Veiði