
Kaupmannahafnarborg ákvað að sniðganga vörur frá hernumdum svæðum fyrr í sumar og þar hefur ákvörðunin ekki dregið jafn mikinn dilk á eftir sér. Dagur hefur viðurkennt að orðalag bókunarinnar hafi ekki verið nákvæmt, þar komi ekki nógu skilmerkilega fram að átt sé við vörur frá hernumdum svæðum. Það hafi þó verið ætlunin.
Hann hefur verið í símasambandi við borgarstjórann í Kaupmannahöfn, Frank Jensen og þegið af honum ráð. „Það var áréttað af honum í fjölmiðlum og á fundum með ísraelska sendiherranum til hverra sniðgöngubannið náði, aðeins til hernuminna svæða. Við í borginni munum líka vera í samráði við utanríkisráðuneyti,“ bætir Dagur við en ráðuneytið þurfti að árétta utanríkisstefnu sína eftir samþykkt borgarinnar og að ákvörðunin væri ekki í samræmi við utanríkisstefnu Íslands og ekki heldur ekki til marks um tengsl Íslands og Ísraels.

Hildur Sverrisdóttir, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði í gær að borgarstjóri hlyti að íhuga afsögn sína vegna samþykktar tillögunnar.
Dagur hefur ekki íhugað að segja af sér. „Ég hef viðurkennt að undirbúningi hafi verið áfátt og tek ábyrgð á því með tillögu um að fyrri samþykkt verði dregin til baka. Ekki verða tekin frekari skref fyrr en eftir nauðsynlegt samráð. Mér finnst þetta býsna stór orð hjá Hildi. Ég verð að segja það.“