Átta dagar á milli ríkisstjórnarfunda árið 2007 – fjórir dagar árið 2009 Aðalsteinn Kjartansson skrifar 16. október 2015 09:00 Ríkisstjórn Geirs Haarde fundaði 44 sinnum árið 2007 en að jafnaði fundar ríkisstjórnin 76 sinnum á ári. Vísir/Anton
Frá árinu 2000 hefur engin ríkisstjórn fundað jafn stopult og ríkisstjórn Geirs Haarde, sem var við völd þegar hrunið skall á. Að jafnaði hafa ríkisstjórnir fundað 76 sinnum á ári á þessu tímabili en góðærisárið 2007 fundaði ríkisstjórnin aðeins 44 sinnum. Til samanburðar hefur ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, sem er nú við völd, fundað 57 sinnum það sem af er þessu ári. Þetta kemur fram í svörum Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra við fyrirspurn Steingríms J. Sigfússonar, þingmanns Vinstri grænna, á Alþingi.Ríkisstjórnarfundir | Create line chartsÞar kemur einnig fram að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, sem tók við eftir hrunið, er sú stjórn sem fundað hefur oftast, eða samtals 95 sinnum. Aldrei hafa verið haldnir jafn margir ríkisstjórnarfundir og einmitt það ár, en ríkisstjórn Geirs, sem sagði af sér 1. febrúar það ár fundaði fimm sinum. Samtals gerir það því 100 fundi. Ef tíðni funda er skoðuð kemur í ljós að á valdatíma Jóhönnu liðu að jafnaði 3,9 dagar á milli ríkisstjórnarfunda, miðað við daga í embætti og fjölda funda. Á valdatíma Geirs liðu hins vegar að jafnaði 5,5 dagar á milli funda. Sé þetta greint nánar eftir árum kemur í ljós að árið 2007 fundaði stjórn Geirs að jafnaði á átta daga fresti.Tíðni ríkisstjórnarfunda | Create bar charts
Alþingi Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn Innlent Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Innlent Fleiri fréttir Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Sjá meira