Þess vegna er ekki nema von að fólk hafi rekið í rogastans þegar það sá að búið var að setja þennan óþolandi Gungana inn í nýjustu stikluna fyrir sjöundu myndina í Stjörnustríðsbálknum, Star Wars: The Force Awakens.
Eini maðurinn sem ber ekki kala til Binks er líklega leikarinn sem lék hann, Ahmed Best, sem sagði fyrr á þessu ári að hann sæi ekki eftir því að hafa tekið hlutverkið að sér – þrátt fyrir fyrrnefnt óþol Stjörnustríðsáhugamanna. Til að mynda kom út bók sem bar einfaldlega nafnið Jar Jar Binks must die og þá var Gunganinn kosinn ein mest pirrandi kvikmyndapersóna allra tíma.

Best sagði í samtali við Vice að hlutverkið hafi verið það stærsta sem nokkurn tímann hafi rekið á fjörur hans, bæði fyrr og síðar. Það hafi opnað hinar ýmsu dyr fyrir Best og veitt honum tækifæri sem honum hefðu aldrei staðið annars til boða.
Þess vegna verður að teljast líklegt að Ahmed Best sé maðurinn á bakvið kvikmyndastiklu sem ferðast nú um netheima á ógnarhraða. Fáir aðrir koma til greina því engum heilvita manni myndi detta í hug að setja þessa óþolandi fígúru inn í kvikmyndastiklu sem fékk hörðustu aðdáendur til að fella gleðitár.
Fleiri orð verða ekki höfð um þessa stiklu sem gæti mögulega verið hin fullkomna blanda af aðdáunarverðu og afleitu.