„Það er enginn vilji hjá Alcan til að ganga til samninga, það er á hreinu. Því er vilji þeirra einhver annar. Nú mun brátt fara í hönd lokunarferli álversins. Það er greinilega það sem forsvarsmenn fyrirtækisins vilja. Við munum í samninganefnd starfsmanna halda fund í fyrramálið (dag) til að fara yfir stöðuna,“ segir Gylfi.

Í samningum um álver í Straumsvík við íslenska ríkið hefur einnig verið ákvæði um óviðráðanleg öfl. Í upprunalega samningnum milli stjórnvalda og AluSuisse var kveðið á um að vinnudeilur og verkföll væru hluti af svokölluðum óviðráðanlegum öflum ásamt styrjöldum, náttúruhamförum og öðrum þáttum. Yrði þetta ákvæði virkjað losnaði fyrirtækið undan kaupskyldu á rafmagni. Gylfi segist óttast að eitthvað slíkt sé uppi á teningnum. „Þetta hafa erlendir blaðamenn allavega viljað ræða við mig og telja áhugaleysi Alcan til að semja við okkur vera hluta af stærri sögu,“ segir Gylfi.

„Staðan er alvarleg, því er ekki að neita en markmið okkar er að semja, það er alveg ljóst,“ segir Ólafur Teitur. „Kostnaðurinn við að endurræsa álverið eftir lokun sem þessa gæti numið hundruðum milljóna króna.“
Fram kemur í minnisblaði Hafnarfjarðarbæjar að viðskipti álversins við fyrirtæki í Hafnarfirði nemi allt að tveimur milljörðum á ári. Að sama skapi eru beinar tekjur Hafnarfjarðarbæjar af álverinu í Straumsvík 1,7 milljarðar á ári. Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, sagði bæjaryfirvöld fylgjast með gangi mála.
„Við vonum að það verði hægt að finna lausn á þessari deilu. Það eru miklir hagsmunir í húfi fyrir alla aðila að samningar náist,“ sagði Haraldur.
Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, veiti ekki viðtal þegar eftir því var leitað.