Skoðun

Varasamt að hreykja sér

Orri Vigfússon skrifar
Raforkustefna Íslendinga hefur hingað til miðast við að lágmarka neikvæð áhrif af stíflum og öðrum raforkumannvirkjum. Kappkostað hefur verið að virkja eins ofarlega í ánum og mögulegt er, helst í jökulám á borð við Þjórsá, Blöndu og Jökulsá á Dal, og takmarka þannig áhrif á gönguleiðir fiska. Eigi áfram að framleiða græna og endurnýjanlega orku á Íslandi þarf að fara varlega og ganga ekki of nærri óspilltri náttúru, sem er okkar verðmætasta auðlind.

Á loftslagsráðstefnunni í París komu fram nýjar upplýsingar um þann skaða sem vatnsaflsstíflur valda á lífríkinu. Þar bar hæst tjón á fiskstofnum vegna búsvæða­missis, rennslisbreytinga og setefnisflutninga. Sagt var frá því að rennslisbreytingar af manna völdum hafi haft mun alvarlegri áhrif en áður var talið. Í París var því lögð höfuðáhersla á að lífríkið yrði undantekningalaust kannað í þaula og umhverfisáhrif metin áður en verkfræðingar fengju að hlutast til um mannvirkjagerð í straumvötnum.

Þótt okkur finnist að bærilega hafi til tekist í raforkumálum Íslendinga til þessa er vafasamt að hreykja sér um of af árangrinum og leggja til að slakað verði á umhverfiskröfum á næstu árum og áratugum. Mikilvægara er að huga betur að þeim vísbendingum sem komið hafa fram að undanförnu um að hin varkára stefna fyrri áratuga gagnvart lífríkinu hafi jafnvel ekki dugað til að koma í veg fyrir alvarleg umhverfisspjöll. Mögulega hefur stíflun jökulfljóta til dæmis spillt lífríki sjávar og þar með hrygningarstöðvum nytjafiska sem njóta góðs af framburði fljótanna – sem nú safnast fyrir í uppistöðulónum.

Þau rök eru léttvæg að við mengum aðeins minna en mestu umhverfissóðar heimsins, sem verma botnsætin þegar kemur að losun gróðurhúsalofttegunda. Okkur ber engin siðferðisleg skylda til að setjast sjálf í botnsætið til þess eins að losa aðra við að sitja þar. Höfuðmarkmið okkar í umhverfismálum á Íslandi á að vera að vernda náttúruna. Þar vegur þyngst að ganga ekki á sjálfbæra fiskstofna, stilla orkuframleiðslu í hóf eftir þörfum þjóðarinnar og hugsa í því tilliti til komandi kynslóða með því að standa vörð um græna og umhverfis­væna ímynd landsins. Aðeins þannig getum við orðið öðrum góð fyrirmynd um þá ábyrgu afstöðu í loftslagsmálum sem heimsbyggðin kallar nú eftir.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×