Graskerssúpa
Grasker eru ekki beint algeng á borðum landsmanna. Helst að stóru graskerin hafi verið flutt inn og fengist í verslunum hérlendis í október og nóvember í kringum hrekkjavöku- og þakkargjarðarhátíðirnar útlensku sem Íslendingar hafa í vaxandi mæli farið að halda upp á.
En sú tegund graskerja sem algengust er í matargerð er svokallað „butternut squash” sem er mun minna en þau stóru og öðruvísi í laginu. Þau hafa á undanförnum árum einnig fengist í sumum verslunum hérlendis og fólk að byrja að fikra sig áfram við notkun þeirra.
Eftir eldun minnir það nokkuð á sætar kartöflur en graskerið er gott bakað í ofni sem meðlæti, í pottrétti, salöt og ýmislegt annað. Og síðast en ekki síst í súpur.
1 msk. ólífuolía eða smjör
1 laukur, sneiddur
1 epli, skrælt og skorið í bita
1 tsk. rósmarín þurrkað eða 1 msk. ferskt
1 tsk. kanilduft
700 g grasker(butternut squash), skrælt og skorið í bita
750 ml grænmetissoð
salt og pipar
Meðlæti og skraut ristuð graskersfræ léttþeyttur rjómi eða sýrður rjómi, ef vill
1. Mýkið lauk og epli í ólífuolíu eða smjöri í potti við vægan hita.
2. Blandið síðan rósmarín og kanildufti vel saman við.
3. Bætið síðan graskeri út í og hellið grænmetissoðinu saman við. Saltið og piprið.
4. Látið suðuna koma upp. Lækkið hitann og látið malla í 25-30 mínútur eða þar til graskerið er orðið mjúkt og fulleldað.
5. Takið af hitanum og maukið súpuna með töfrasprota eða í blandara þar til verður slétt og mjúk. Ef þið viljið þynna súpuna bætið þá aðeins við grænmetissoði eða vatni. Smakkið til og bætið í kryddið að smekk.
6. Berið fram með ristuðum graskersfræjum og rjóma ef vill.
Tilbreyting Gott er að bæta einni lítilli dós af kókosmjólk saman við súpuna og um 1 tsk. af fersku, rifnu engiferi. Engiferið er þá sett í grunninn strax í upphafi með lauknum og kókosmjólkinni bætt út í við lok suðutímans. Minnkið þá grænmetissoðið í súpunni um 100 ml.