Skemmtilegur bjánaskapur er samt bjánaskapur Kári Stefánsson skrifar 21. apríl 2015 06:30 Sif Sigmarsdóttir er sá pistlahöfundur sem skrifar í íslensk dagblöð sem mér þykir hvað mest varið í fyrir ýmissa hluta sakir. Pistlarnir hennar eru skemmtilegir, skringilegir, öðruvísi og fjalla oftast um efni sem mér finnast skipta máli. Það er kannski þess vegna sem það fór fyrir brjóstið á mér þegar ég las pistilinn hennar á föstudaginn í síðustu viku þar sem hún gerði mér upp hegðun og skoðanir til þess eins að koma sínum á framfæri. Það er nefnilega alltaf erfitt fyrir okkur hégómafulla þegar hetjurnar okkar ákveða að fórna okkur, þótt það sé fyrir góðan málstað. Ég geri mér hins vegar grein fyrir því að það er býsna vafasamt af mér að byrja á því að hrósa pistlunum Sifjar og fara svo að hrína út af því að það halli á mig í einum þeirra. Ég vil í það minnsta vara lesandann við þeirri staðreynd að sá maður sem svona pistill fjallar um er ekki endilega hæfastur til þess að meta hann. En það eru fjögur atriði í pistlinum sem trufla mig:1. Ætluð en ósýnd hegðunHún byrjar á því að segja frá því þegar fréttastjóri á Morgunblaðinu sem bað hana sem ungan blaðamann að hringja í mig hafi varað hana við því að ég gæti öskrað á hana og kallað hana illum nöfnum. Síðan segir hún að ég hafi ekki svarað þegar hún hringdi þannig að við hljótum, Sif og ég, að vera sammála um að ég hafi hvorki hrópað á hana né kallað hana illum nöfnum. Þessi ætlaða en ósýnda hegðun var henni hins vegar ástæða til þess að forðast mig allar götur síðan. Það má líka ráða í frásögnina að henni sé ætlað að sannfæra fólk um að svona hegðun þótt hún hafi ekki verið sýnd sé þeim ástæða til þess að efast um málflutning undirritaðs.2. Gerðar upp skoðanirSif gefur í skyn að ég líti svo á að Hús íslenskra fræða sé sá kostnaðarliður „sem konum og börnum stafar mest hætta af“. Það er ekkert fjær sanni og fátt í mínum málflutningi gefur henni ástæðu til þess að draga þá ályktun. Hún nefnir jarðgöng sem dæmi um annað sem mætti frekar víkja en Húsið og þar ég er henni hjartanlega sammála og hef ekki legið á þeirri skoðun minni. Ég tjáði til dæmis andúð mína á Vaðlaheiðargöngunum í öllum fjölmiðlum, sjónvarpi, útvarpi og í viðtölum og í aðsendum greinum í dagblöðum. Ég er hins vegar ekki viss um hvort ætti að flokka þau göng sem glæp Steingríms Joð eða refsingu hans en það væri of langt mál að fara út í þá sálma hér. Hitt er víst að það var ákvörðun Steingríms Joð að þröngva göngunum upp á þjóðina og það var að mínu mati ein af mörgum slæmum ákvörðunum sem hann tók sem fjármálaráðherra. Svo slæm fannst mér þessi ákvörðun Steingríms Joð að þegar ég fór í svolitla aðgerð um daginn bað ég aðstandendur mína um að sjá til þess að ég tæki enga mikilvæga ákvörðun að aðgerðinni lokinni fyrr en búið væri að þvo af mér joðið.3. Tilefni greinar minnarÉg tók Hús íslenskra fræða sem dæmi um fjölmargt skrítið í forgangsröðunum núverandi og fyrrverandi ríkisstjórnar, sem báðar virðast líta svo á að gott heilbrigðiskerfi sé lúxus sem við getum án verið en alls konar jarðgöng séu nauðþurftir þjóðarinnar. Ég tók þetta dæmi, ekki vegna þess að mér fyndist það gott miðað við ýmislegt annað heldur vegna þess að nýjasta útspil ríkistjórnarinnar kallaði á það. Forsætisráðherra gaf það klárlega í skyn að ríkið ætti aðgang að fé til þess að klára Hús íslenskra fræða fyrir fyrsta desember 2018. Ég sagði í greininni minni að mér fyndist því betur varið til kaupa á jáeindaskanna og mér finnst það enn. Ég sagði ekki og gaf heldur ekki í skyn að mér fyndist því betur varið í að bora göng í gegnum fjöll eða í góð eða vond hugbúnaðarverkefni á Hvammstanga eða í nokkuð annað af jarðgangaverkefnunum og það er beinlínis óheiðarlegt af Sif að gefa það í skyn.4. Samasemmerki milli Húss íslenskra fræða og lista og menningarHús eru bara hús og þau stunda ekki fræðistörf heldur fólkið sem leitar skjóls í þeim. Það er heldur engin trygging fyrir því að íslensk fræði yrðu betur unnin í nýju flottu húsi vestur á Melum heldur en í núverandi húsnæði sem er á víð og dreif. Það er hins vegar gaman að bjóða fólki upp á nýtt og gott húsnæði fyrir vinnustað og það er gaman að taka á móti gestum í slíku húsnæði en það er eins með það og annað gaman að það hlýtur að víkja fyrir nauðsynjum. Ég vil samt taka það fram að mér finnst við sem þjóð eiga að styðja íslensk fræði meira en önnur fræði til dæmis mun meira en þau fræði sem ég og mínir félagar stundum af því að í íslenskum fræðum höfum við bæði augljósar skyldur og getu umfram aðra. Það er hins vegar ekki bara furðulegt að draga samasemmerki milli húss vestur á Melum og lista og menningar, það er líka skrítið að draga slíkt merki milli íslenskra fræða og lista og menningar. Íslensk fræði hafa næsta lítið ef nokkuð með listir að gera og hafa harla lítil áhrif á ríkjandi menningu. Ef það reynist ókleift að sannfæra ríkisstjórnina um að halda upp á hundrað ára afmæli fyrsta desember með því að fjarlægja nauðsyn þess að senda sjúklinga til Kaupmannahafnar og veita okkur aðgang að nauðsynlegu lækningatæki og hangir eins og hundur á roði á þeirri hugmynd að gera það með því að hlúa að íslenskri menningu og listum væri nær að nota peningana til þess að fella niður virðisaukaskatt af sölu bóka, tónlistar og myndlistar þannig að listamennirnir sem eru burðarásar íslenskrar menningar eigi auðveldar með að koma verkum sínum á framfæri. Það myndi í ofanálag gera það að verkum að í framtíðinni væri úr meiru að moða fyrir þá sem stunda íslensk fræði. Íslensk menning yrði meiri að vöxtum. Titillinn á pistlinum Sifjar sem ég er að gera að umtalsefni hér er „Listir og menning drepa konur og börn“. Mér finnst hann býsna smekklaus og ekkert fyndinn vegna þess að ótímabær dauði þeirra sem hægt væri að halda á lífi ef við vanræktum ekki heilbrigðiskerfið er ljótur, sorglegur og með öllu óásættanlegur. Það skrítna við þetta allt saman er að mér finnst samt þessi grein Sifjar, eins og allt sem hún skrifar, skemmtileg og það er yfir henni öfundsverður léttleiki. En þrátt fyrir falslausa snilld sína ætti hún að hafa í huga varnaðarorð sem gamall kennari minn lét gjarnan falla í byrjun tíma: „Krakkar, þið eruð rosalega gáfuð en þið hafið svo sannarlega ekki efni á því að líta út fyrir að vera vitlausari en þið eruð.“ Hann muldraði síðan gjarnan ofan í barm sér svo enginn heyrði nema ég og hann: „En þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því Kári minn af því að það eru engar líkur á því að þú getir það.“ En það kemur þessu máli ekkert við og er mín eigin prívat sorgarsaga. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Kári Stefánsson Tengdar fréttir Listir og menning drepa konur og börn Þegar ég starfaði í fyrsta sinn við fjölmiðil sem sumarstarfsmaður á Morgunblaðinu var mér úthlutað verkefni sem fékk mig til að skjálfa á beinunum. Ég átti að hringja í Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, og taka hann tali. 17. apríl 2015 07:00 Mest lesið Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon Skoðun Að mása sig hása til að tefja Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Leikjanámskeið fyrir fullorðna við Austurvöll Þórður Snær Júlíusson Skoðun Skýr og lausnamiðuð afstaða Framsóknar til veiðigjalda Ingibjörg Isaksen Skoðun Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Sparnaðarráð fyrir ferðalagið Svandís Edda Jónudóttir Skoðun Samráðsdagar á Kjalarnesi Ævar Harðarson Skoðun Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun Hvers vegna var Úlfar rekinn? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ríkisstjórnin ræðst gegn ferðaþjónustu bænda Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leiðréttum kerfisbundið misrétti Jónína Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Leikjanámskeið fyrir fullorðna við Austurvöll Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Sparnaðarráð fyrir ferðalagið Svandís Edda Jónudóttir skrifar Skoðun Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon skrifar Skoðun Samráðsdagar á Kjalarnesi Ævar Harðarson skrifar Skoðun Skýr og lausnamiðuð afstaða Framsóknar til veiðigjalda Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Að mása sig hása til að tefja Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Sjónarspil í Istanbul Gunnar Pálsson skrifar Skoðun Að vilja meira og meira, meira í dag en í gær Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Sjálfboðaliðinn er hornsteinninn Hannes S. Jónsson skrifar Skoðun Kallað eftir málefnalegri umræðu um kröfur um íslenskukunnáttu Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Gangast við mistökum Júlíus Birgir Jóhannsson skrifar Skoðun Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin ræðst gegn ferðaþjónustu bænda Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Að apa eða skapa Rósa Dögg Ægisdóttir skrifar Skoðun Að reyna að „tímasetja“ markaðinn - er það góð strategía? Baldvin Ingi Sigurðsson skrifar Skoðun Lífsnauðsynlegt aðgengi Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna var Úlfar rekinn? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið? Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Þegar við ætluðum að hitta Farage - Á Ísland að ganga í ESB? Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Sama steypan Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Ofbeldi gagnvart eldra fólki Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Að taka ekki mark á sjálfum sér Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Betri borg Alexandra Briem skrifar Skoðun Að eiga sæti við borðið Grímur Grímsson skrifar Skoðun Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Íþróttir eru lykilinn Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Framtíð safna í ferðaþjónustu Guðrún D. Whitehead skrifar Skoðun Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp? Einar Baldvin Árnason skrifar Sjá meira
Listir og menning drepa konur og börn Þegar ég starfaði í fyrsta sinn við fjölmiðil sem sumarstarfsmaður á Morgunblaðinu var mér úthlutað verkefni sem fékk mig til að skjálfa á beinunum. Ég átti að hringja í Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, og taka hann tali. 17. apríl 2015 07:00
Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon Skoðun
Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun
Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar
Skoðun Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon skrifar
Skoðun Kallað eftir málefnalegri umræðu um kröfur um íslenskukunnáttu Eiríkur Rögnvaldsson skrifar
Skoðun Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir skrifar
Skoðun Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið? Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson skrifar
Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon Skoðun
Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun
Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun