Skoðun

Markmið leiðréttingarinnar náðust að fullu

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar
Í skýrslu fjármála- og efnahagsráðherra um niðurfærslu verðtryggðra fasteignalána sést svart á hvítu hversu vel hefur tekist til við leiðréttinguna. Hvert orð sem sagt var um leiðréttinguna hefur staðið eins og stafur á bók. Hvert skref var í samræmi við áætlun. Ástæða er til að þakka þeim stóra hópi sem gerði þetta verkefni að veruleika.

Leiðréttingin kemur til af forsendubresti og varð að helsta kosningamáli alþingiskosninga árið 2013 eins og flestir muna. Þeir sem urðu fyrir tjóni vegna ófyrirséðrar hækkunar á höfuðstól verðtryggðra húsnæðislána fá tjónið bætt, óháð „stétt eða stöðu“. Fyrir þessari aðgerð eru 1) réttlætisrök – almenningur varð fyrir forsendubresti og sértækar aðgerðir skiluðu takmörkuðum árangri, 2) jafnræðisrök – lánaform á ekki að ákvarða örlög heimila, 3) sanngirnisrök – tjón almennings af bankahruninu var verulegt og 4) efnahagsleg rök – há skuldsetning heimila dregur úr krafti efnahagslífsins.

Leiðréttingin byggir á samspili beinnar niðurfærslu höfuðstóls og skattleysis séreignarsparnaðar til lækkunar höfuðstóls húsnæðislána. Þeir sem nýta báða liði leiðréttingarinnar geta lækkað húsnæðisskuldir sínar um rúmlega 20%.

Leiðréttingin leiðir einnig til tekjujöfnuðar enda kemur hún hlutfallslega langbest út fyrir þá tekjulægri. Hún líkist mest krónutöluhækkunum í kjarasamningum. Leiðrétting þeirra 10% sem lægstar hafa tekjurnar nemur rúmlega 60% af árstekjum þeirra en um 8% hjá þeim 10% sem hæstar hafa tekjurnar. Dreifing leiðréttingarinnar eftir tekjum er til muna jafnari en dreifing fyrri úrræða, svo sem 110% leiðarinnar.

Fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna, hvort heldur þeir tjá sig á þingi eða á leiðarasíðu Fréttablaðsins, eiga erfitt með að sætta sig við velheppnaða leiðréttingu. Tveir hinna herskárri skrifa um málið á síðunni í gær. Stjórnarandstöðudálkurinn „Frá degi til dags“ heldur fram þeim hreinu ósannindum að leiðréttingin renni að mestu til hátekjufólks (raunin er þveröfug -ólíkt 110% leiðinni) og í leiðara er fullyrt að fjármagn til leiðréttingarinnar hafi ekki verið sótt til kröfuhafa eins og lofað hafði verið. Hvernig menn geta fengið þetta út er mér hulin ráðgáta. Bankaskattur á slitabú fallinna fjármálafyrirtækja var lagður á til að brúa það bil í tíma sem yrði á milli lausnar á vanda þjóðarbúsins vegna slitabúa bankanna og leiðréttingarinnar. Nú liggur hins vegar fyrir að svigrúmið, sem margir töldu fyrir kosningar að væru sjónhverfingar einar, er meira en fyrirheit voru gefin um fyrir kosningar. Það liggur líka fyrir að það var miklu meira en nóg til að standa undir lækkun skulda heimilanna, rétt eins og lofað var fyrir kosningar.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×