Hvað gerist í dag? Hrafnhildur Lúthersdóttir keppir í 200 metra bringusundi í dag.
Það verður ekki annað sagt en að íslensku keppendurnir á heimsmeistaramótinu í 50 metra laug í Kazan í Rússlandi hafi staðið sig með miklum sóma, það sem af er, en mótinu lýkur á sunnudaginn.
„Við getum sagt að þetta sé eins og björtustu vonir stóðu til,“ sagði Magnús Tryggvason, formaður landsliðsnefndar, í samtali við Fréttablaðið í gær en hann er að vonum stoltur af sínu fólki.
„Þetta er næstbesti árangur sem við höfum náð á HM frá upphafi. Eina skiptið sem við höfum gert betur var á HM í Japan 2001 þegar Örn Arnarson vann silfur í 100 metra baksundi og brons í 200 metra baksundi.“
Afrek Hrafnhildar Lúthersdóttur ber hæst en hún komst í úrslit í 100 metra bringusundi og lenti þar í sjötta sæti sem er besti árangur sem íslensk sundkona hefur náð á HM í 50 metra laug.
„Ég hafði tröllatrú á Hrafnhildi eftir að hafa fylgst með henni á Smáþjóðaleikunum,“ sagði Magnús en Hrafnhildur sópaði til sín verðlaunum á Smáþjóðaleikunum í byrjun júní.
„Hún er auðvitað hokin af reynslu eftir að hafa verið að synda í háskólasundinu í Bandaríkjunum í fjögur ár. Hún er að æfa með heimsklassa sundfólki,“ bætti Magnús við en Hrafnhildur er í University of Florida.
Sundkonan öfluga á þó enn eftir að keppa í sinni aðalgrein sem er 200 metra bringusund. Keppni í þeirri grein hefst snemma í dag en Magnús segir árangurinn í 100 metra bringusundinu gefa góð fyrirheit fyrir 200 metrana.
Anton Sveinn McKee stingur sér einnig til sunds í dag, í 200 metra bringusundi sem er hans besta grein.
„Þetta er hans grein en það er við ramman reip að draga. Hann þarf held ég að setja Íslandsmet til að komast í átta manna úrslit. Það er rosaleg samkeppni í 200 metra bringusundinu í dag,“ sagði Magnús um Anton sem komst ekki upp úr undanrásunum í 100 metra bringusundinu þrátt fyrir að hafa sett nýtt Íslandsmet og náð A-lágmarki fyrir Ólympíuleikana í Ríó á næsta ári.
Eygló Ósk Gústafsdóttir hefur einnig staðið sig með prýði en hún setti nýtt Íslandsmet í 100 metra baksundi á mánudaginn og náði um leið A-lágmarki fyrir Ólympíuleikana í Ríó á næsta ári. Hennar sterkasta grein er þó 200 metra baksund en hún keppir í þeirri grein á föstudaginn. Magnús segir að hún setji væntanlega stefnuna á úrslit.
„Já, það hlýtur að vera stefnan. Það getur ekki annað verið,“ sagði Magnús en besti tími Eyglóar í greininni er 2:09,36 mínútur.
Eygló og Hrafnhildur verða einnig á ferðinni á sunnudaginn ásamt því að hjálpa íslensku boðssundssveitinni
„Þetta lofar mjög góðu fyrir boðsundið á sunnudaginn. Við erum mjög spennt fyrir því,“ sagði Magnús.
Íslenska sveitin keppir þá í 4 x 100 metra fjórsundi og tólf efstu sveitirnar tryggja sér þátttökurétt á Ólympíuleikuinum í Ríó. Auk Hrafnhildar og Eyglóar eru í íslensku sveitinni Jóhanna Gerða Gústafsdóttir og Bryndís Rún Hansen.
Hrafnhildur Lúthersdóttir var sátt með frammistöðu sína í 100 metra bringusundi á Heimsmeistaramótinu í 50 metra laug en hún keppir á morgun í sinni sterkustu grein, 200 metra bringusundi.
Anton Sveinn McKee bætti í morgun Íslandsmet Jakob Jóhanns Sveinssonar í 100 metra bringusundi á heimsmeistaramótinu í sundi í Kazan í Rússlandi í morgun.