Grindavík fær á morgun tækifæri til að verða fyrsta liðið í fjórtán ár sem ver bikarmeistaratitilinn í kvennaflokki í körfubolta þegar liðið mætir Íslandsmeisturum Snæfells í úrslitaleik í Laugardalshöll klukkan 14.00.
Grindavík gerði sér lítið fyrir og vann vel mannað lið Keflavíkur í bikarúrslitum í fyrra, en eftir að tapa fyrstu þremur bikarúrslitaleikjum í sögu félagsins er Grindavík nú búið að vinna tvo í röð (2008 og 2015).
„Við erum búnar að vera að slípa okkur saman og finna út hvað við ætlum að gera. Við reynum að undirbúa okkur sem best fyrir þennan leik,“ segir Íris Sverrisdóttir, fyrirliði Grindavíkur, í viðtali við Vísis um stóra leikinn á morgun.
Grindavík, bæði í karla- og kvennaflokki, er mikið bikarfélag en Íris gefur lítið fyrir einhverja bikarhefð þegar liðið breytist jafn mikið og raun ber vitni á milli ára.
„Það er erfitt að vera með einhverja bikarsögu því þetta er aldrei sama liðið ár eftir ár. Nú er talað um okkur sem bikarmeistara en þetta er allt annað lið heldur en var í fyrra,“ segir Íris.
Ekki unnið Snæfell í vetur
Mótherjinn á morgun eru Íslandsmeistarar síðustu tveggja ára; Snæfell. Hólmarar eru taldir mun sigurstranglegri og hafa unnið Grindavík tvisvar sinnum í vetur.
„Við höfum aldrei unnið Snæfell í vetur. Þetta verður mjög erfiður leikur þannig við verðum að eiga okkar besta dag til að eiga einhvern möguleika á sigri,“ segir Íris.
„Þær eru með frábæran Kana og svo íslenska landsliðsmenn sem eru mjög góðir. Þær eru mjög hraðar og fljótar upp völlinn. Þær skora mikið úr hraðaupphlaupum sem er eitthvað sem við þurfum að skoða og undirbúa okkur fyrir.“
„Við þurfum að stoppa þessi hraðaupphlaup en líka bara slípa okkur saman og spila góða vörn því vörn vinnur leiki.“
Einstakur dagur
Grindavík er í þriðja sæti Dominos-deildar kvenna með 18 stig í 18 leikjum en Snæfell er á toppnum með 32 stig. Þær gulu hafa unnið nokkra flotta sigra á tímabilinu, til dæmis lagt Hauka í bikarnum, en dottið niður þess á milli.
„Við erum aldrei búnar að vera með fullmannað lið. Það eru alltaf einhver forföll en núna erum við að ná smá stöðugleika þó það vanti eina á laugardaginn,“ segir Íris sem bætir við að Grindavík ætli sér að vinna á morgun.
„Það er hungur í að vinna þennan leik. Þetta er bara einstakur dagur. Það er eiginlega ekki hægt að lýsa þessu. Það vilja allir spila þennan leik og því erum við mjög spenntar,“ segir Íris Sverrisdóttir.
Íris: Ekki hægt að lýsa þessum bikardegi

Tengdar fréttir

Vill vinna fyrir fólkið í bænum
Haiden Palmer, bandarískur leikmaður Snæfells í Domino's-deild kvenna, hefur flakkað á milli landa undanfarin tvö ár. Hún nýtur lífsins í Stykkishólmi þar sem hún getur einbeitt sér að körfuboltanum.

Brynjar Þór: Var sveittur af stressi fyrir leikinn í fyrra
KR-ingar eru orðnir langþreyttir á harmsögum í bikarúrslitum og ætla að leggja Þór á morgun.

Emil Karel: Ég lofa látum í Höllinni
Þór Þorlákshöfn spilar í fyrsta sinn í bikarúrslitum karla í körfubolta í Laugardalshöll á morgun.