
Alþýðusambandið hundrað ára
Æfing í ósvífni
Tilraunir hluthafa til að komast yfir bótasjóði tryggingarfélaganna nú á dögunum, í kjölfar hækkana vegna „bágrar stöðu félaganna“, voru nokkurs konar æfing í ósvífni, tilraun um það hversu langt má ganga án þess að ofbjóða seinþreyttum íslenskum neytendum.
Tilraunin leiddi í ljós að það eru takmörk fyrir því hvað hægt er að bjóða almenningi upp á fráleita eignaupptöku. Hún varð líka til þess að rifja upp fyrir okkur hversu gallað fyrirkomulag er á starfsemi tryggingarfélaga hér á landi, og hversu brýnt er að koma á fót félagslegum rekstri kringum þessi nauðsynlegu útgjöld, þar sem önnur sjónarmið ríktu en þau að skapa hluthöfum sem mestan arð.
Þetta minnti okkur á það hversu langt hefur verið gengið hér á landi í þá átt að eftirláta markaðsöflunum alls konar rekstur þar sem samfélagsleg vitund þyrfti að ríkja – og siðferðissjónarmiðum ætti að gera hátt undir höfði. Í rauninni er ámóta viskulegt að reka tryggingarfélög með gróðasjónarmið eigenda að leiðarljósi og að afhenda einkaaðilum ríkissjóð.
Þær eru eflaust ýmsar skýringarnar á því hversu náðuga daga íslenskir kapítalistar eiga.
Ein þeirra kann að vera sú að samtök launafólks náðu hér ekki jafn miklum pólitískum styrk og í nágrannalöndum okkar, þar sem meira ber á samfélagslegri meðvitund fólks, sem lýsir sér til dæmis í því að ekki er fyrst og fremst litið á leigjendur húsnæðis sem bráð, eins og alsiða er hér á landi.
„Upp með dalina?…“
Það segir sína sögu að nú þegar Alþýðusambandið og Alþýðuflokkurinn eiga hundrað ára afmæli skuli hinn pólitíski flokkur launafólks ekki vera lengur starfandi, nema að nafninu til. Og staðan orðin þannig á þeim flokki sem átti að sameina jafnaðarmenn hér á landi, Samfylkingunni, að hann verður æ meira Sérfylkingin; íslenskir kjósendur búnir að breyta henni í gamla Alþýðuflokkinn en allt jafnaðarmannafylgið komið á flokk sem fyrst og fremst snýst um andúð á hvers kyns valdi og forsjá; og er þar togast á um hvort sé hægri anarkistaflokkur, að hætti Friedman-feðga, eða vinstri anarkistaflokkur í anda Bakúníns.
Upp til hópa segjast Íslendingar vera jafnaðarmenn en sárafáir telja sig krata. Þarna er gerður einhver greinarmunur sem erfitt er að henda reiður á; „krati“ er raunar ekki annað en stytting á „sósíaldemókrata“, alþjóðlegu orði þessarar hreyfingar, og vísar í lýðræðishugsjónina, sem aðskildi einmitt jafnaðarmenn frá kommúnistum, sem aðhyllast alræði. En það er eins og orðið þýði eitthvað allt annað í huga margra; kannski vegna þess spillingarorðs sem lá á Alþýðuflokknum þegar hann var með Sjálfstæðisflokknum í Viðreisnarstjórninni. Næstum eins og orðið „krati“ merki „veifiskati“ eða eitthvað þess háttar.
Jón Trausti lét persónu í sögu eftir sig lýsa jafnaðarstefnunni með orðunum „Upp með dalina! Niður með fjöllin!“ sem kann að lýsa nokkuð vel þeim þankagangi að jöfnuður jafngildi allsherjar flatneskju. Þó er það svo að fátt þykir fyndnara hér á landi en hofmóður í krafti auðs og valda, og eru enn sagðar gamansögur af útrásarvíkingunum þegar þeir fóru að reyna að halda sig sem enska lorda í marga ættliði. Íslensk jafnaðarstefna er um leið mikil einstaklingshyggja, þar sem lögð er áhersla á athafnarými hvers og eins, hvort sem viðkomandi vill fá að stofna fyrirtæki, reisa hús sem öllum finnst ljótt eða gefa út lélega plötu. Hér er rík tilfinning fyrir því að sérhver manneskja skapi sig sjálf og megi gera ýmsar misvel útfærðar tilraunir á þeirri vegferð.
Við lítum almennt á okkur sem fjöll fremur en dali. Það er ágætt. En við þurfum samt hvert á öðru að halda. Alþýðusambandið er vitnisburður um það hverju samtök launafólks fá áorkað, þegar samtakamættinum er beitt – þau margvíslegu réttindi sem við höfum fengið, þrátt fyrir allt. Fyrir öllum þessum réttindum hefur þurft að berjast og jafnvel berjast lengi – allt frá Vökulögunum á sinni tíð. Verkefni dagsins snúast ekki síst um að koma böndum á starfsemi yfirþjóðlegra fyrirtækja sem stunda starfsmannaleigu og búa fólki sínu stundum þannig aðstæður, að ekki verður kallað annað en þrælahald. Við vitum að hægri flokkarnir telja alla lagasetningu um slík mál vera „íþyngjandi“ en óneitanlega myndi maður vilja óska þess að hinn pólitíski armur alþýðusamtakanna væri öflugri.
Skoðun

Hvert er eðli innflutningtolla? – Hvað er Trump eiginlega að gera? - Hverjir munu líða mest?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Sagnaarfur Biblíunnar - Babýlonherleiðingin og örlög smáþjóða í átökum heimsvelda
Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Fjölgun hjartasjúkdóma og aukið álag á spítalana í boði Carnivore bylgjunnar?
Guðrún Nanna Egilsdóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar

Allt að vinna, engu að tapa!
Helga Rakel Rafnsdóttir,Margrét M. Norðdahl skrifar

Fiskurinn í blokkunum
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar

Snýst núverandi staðsetning Reykjavíkurflugvallar um öryggi… eða mögulega eitthvað annað
Daði Rafnsson ,Kristján Vigfússon ,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar

Þegar vald óttast þekkingu
Halla Sigríður Ragnarsdóttir skrifar

Með hjúkkuna upp í rúm og lækninn í vasanum
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Hverjir eiga Ísland?
Jón Baldvin Hannibalsson skrifar

Komum náminu á Höfn í höfn
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Betra líf eftir greiningu krabbameins, tímamótarannsókn sem vísar veginn
Sigríður Gunnarsdóttir skrifar

Veiðigjöld vs afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamatsskyldu
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Tollar – Fyrir hverja?
Valdimar Birgisson skrifar

Þau eru fá en þörfin er stór
Sif Huld Albertsdóttir skrifar

Samvinnufélög, valkostur í atvinnurekstri
Elín H. Jónsdóttir,Guðrún Johnsen skrifar

Leiðin til helvítis
Jón Pétur Zimsen skrifar

Eitruð kvenmennska
Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Hinn nýi íslenski aðall
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Samningur HSÍ við Rapyd – Opið bréf til frambjóðenda í formannskjöri
Hópur stuðningsmanna Íslands í handbolta skrifar

Gjaldskrár munu ekki virka til að koma aftur framleiðslu af stað
Sæþór Randalsson skrifar

Mannúð og samvinna á tímum sögulegra þjáninga
Sólrún María Ólafsdóttir skrifar

Hvernig getum við notað nýjar ráðleggingar um mataræði?
Óla Kallý Magnúsdóttir,Jóhanna E. Torfadóttir skrifar

Þegar rykið hefur sest
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Búum til réttlátt lífeyriskerfi
Hrafn Magnússon skrifar

Á undan jarðýtu komi fornleifafræðingur…
Stefán Pálsson skrifar

Hin raunverulega byggðastefna
Jón Þór Kristjánsson skrifar

Sameining Garðabæjar og Hafnarfjarðar – kostir – ókostir - skynsemi
Ó. Ingi Tómasson skrifar

Rúmir 30 milljarðar í fangelsi
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

Sérstök staða orkusveitarfélaga!
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Miklar endurbætur á lánum menntasjóðs námsmanna
Elín Íris Fanndal skrifar