Klopp: Þvílík frammistaða Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. maí 2016 21:56 Jürgen Klopp fagnar í kvöld. Vísir/Getty
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var hátt uppi eftir að leikmenn hans unnu 3-0 sigur á Villarreal á Anfield í kvöld og tryggðu liðinu sæti í úrslitaleik Evrópudeildarinnar. „Þetta var yndislegt kvöld og frábær leikur hjá mínu liði. Þvílík frammistaða," sagði Jürgen Klopp við BT Sport eftir leikinn. „Það var allt á fullu fyrsta hálftímann sem var frábært. Við misstum aðeins þolinmæðina síðustu fimmtán mínútur fyrri hálfleiksins," sagði Klopp en Villarreal fékk þá möguleika til þess að jafna metin. "Planið í seinni hálfleik var að halda áfram að gefa allt í þetta en nota heilann aðeins meira. Þetta þróaðist frábærlega fyrir okkur," sagði Klopp.Sjá einnig:Liverpool einum sigri frá Meistaradeildinni | Sjáðu mörkin í 3-0 sigri á Villarreal „Það töluðu margir um þetta Liverpool-lið áður en ég kom. Það voru allir að pæla í gæðum hópsins og félagsskiptum sem höfðu ekki gengið upp. Ég kom hingað af því að mér fannst Liverpool vera með fínan hóp," sagði Klopp. „Núna erum við komnir í úrslitaleikinn í Basel sem þýðir aðeins lengra tímabil," sagði Klopp kátur. „Við munum fjölmenna frá Liverpool til Basel. Við förum þangað fimmtíu þúsund, kannski sextíu þúsund og jafnvel hundrað þúsund. Þetta er falleg borg og stutt frá heimili mínu," sagði Klopp í skýjunum eftir leikinn.
Enski boltinn Evrópudeild UEFA Mest lesið „Hér er allt mögulegt“ Fótbolti Leikhús draumanna stóð undir nafni í ótrúlegustu endurkomu síðari ára Fótbolti Dramatík á Hlíðarenda Handbolti „Maður er náttúrlega bara í pínu sjokki“ Sport Lagði egóið til hliðar fyrir liðið Körfubolti Van Dijk fær 68 milljónir á viku Enski boltinn Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 3-0 | Eyjamenn flugu áfram Íslenski boltinn Móðir Eyglóar afhenti henni sögulegt EM-gull Sport Eygló Fanndal Evrópumeistari Sport Olga ætlar ekki í slag við Willum Sport Fleiri fréttir Van Dijk fær 68 milljónir á viku Hálf úrvalsdeildin á eftir Delap Van de Ven: Tottenham vill vinna Evrópudeildina fyrir Postecoglou Van Dijk skrifaði undir nýjan samning við Liverpool Newcastle upp í þriðja sætið Onana byrjar gegn Lyon en tímabilinu lokið hjá Zirkzee Van Dijk býst við mjög viðburðaríku sumri hjá Liverpool Chelsea eyddi tíu milljörðum í umboðsmenn Lélegasta lið Man United frá upphafi ensku úrvalsdeildarinnar Þjálfari Newcastle að jafna sig eftir lungnabólgu Rory vill veita leikmönnum Man United innblástur Stjórinn fór á barinn með stuðningsmönnunum eftir leik „Einbeitum okkur að fimmtudeginum“ Slæmur dagur hjá Rauðu djöflunum á St. James Park Náðu ekki tveimur titlum á tveimur dögum Sancho bjargaði andliti Chelsea gegn Ipswich Van Dijk skoraði undir lokin og Liverpool með níu fingur á bikarnum Fjórði sigur Úlfanna í röð Enginn komið að fleiri mörkum á 38 leikja tímabili en Salah Hörð keppni um Delap í sumar Onana ekki með gegn Newcastle „Hann hefði getað fótbrotið mig“ Howe lagður inn á spítala og missir af leiknum Skytturnar skildu jafnar við Býflugurnar Jason skoraði í svekkjandi jafntefli Dramatík í Nottingham, Leicester fékk loks stig og Asensio klúðraði tveimur vítum Vonir Plymouth glæðast og Leeds á toppinn Ótrúleg endurkoma hjá City í sjö marka leik Amorim íhugar að henda Onana á bekkinn Grealish og Foden líður ekki vel Sjá meira