Skoðun

Má bjóða þér eiturefni með jarðaberjabragði?

Lára G. Sigurðardóttir skrifar
Finnst okkur í lagi að dreifa neysluvöru sem víðast, ef hún inniheldur minna magn af eiturefnum en sú sem styttir líf um helming neytenda? Það er enginn að tala um að banna rafrettur fyrir reykingamenn en það er full ástæða til að lög og reglugerðir verndi börnin okkar gagnvart rafrettum, líkt og verið er að innleiða í nágrannaþjóðum okkar (1,2). Skoðum nokkrar varasamar fullyrðingar sem heyrst hafa um rafrettur.

1. „Rafrettur eru skaðlausar“ Enn er ekki hægt að fullyrða um skaðsemi rafretta því langtímaáhrif á heilsu eru ekki þekkt (3). Það mun taka áratugi til viðbótar þar til hægt verður að álykta afdráttarlaust um skaðsemi rafretta. Þó er það svo að flestir sérfræðingar eru sammála um að þær séu skaðminni en sígarettur.

2. „Rafrettan mun leysa sígarettuna af hólmi“ Góðum árangri í tóbaksforvörnum var náð áður en farið var að selja rafrettur hérlendis. Auk þess hefur verið sýnt fram á að meira en 90% þeirra sem reyna að hætta sígarettureykingum með því að skipta yfir í rafrettur byrja aftur að reykja (4). Það er svipaður árangur og með nikótínplástrum.

3. „Bragðefnin í rafrettum eru saklaus“ Rannsóknir sýna að rafrettuvökvi inniheldur í flestum tilfellum skaðleg efni og þar með talin krabbameinsvaldandi efni, sem geta valdið skemmdum á erfðaefni fruma (5,6,7,8).

4. „Unglingar byrja ekki að nota rafrettur“ Tíðni rafrettureykinga hefur aukist meðal unglinga auk þess sem sýnt hefur verið fram á að þeir unglingar sem nota rafrettur eru líklegri til að leiðast út í sígarettureykingar (9,10,11,12). Tóbaksfyrirtækin eru nú að yfirtaka rafrettuiðnaðinn (13) og beina agni sínu að börnum og unglingum sem eru því miður oft auðveld bráð nikótínfíknar (14). Fjárhæðir sem settar eru í auglýsingar hafa hátt í tuttugufaldast á þremur árum (15) og tóbaksrisinn hefur hvorki gefið út yfirlýsingu um að markmiðið sé að útrýma tóbaksreykingum né nikótínfíkn (16).

5. „Rafrettuvökvinn er ekki slysagildra“ Ungum börnum stafar bráð hætta af nikótínvökvum sem gjarnan eru seldir í sælgætisbúningi. Eitrunarútköll af völdum nikótíns í rafrettuvökva fimmtíufölduðust í USA á fjórum árum (17). Lífshættulegum eitrunum meðal barna hefur verið lýst og tíu mánaða gamalt barn var hætt komið eftir að hafa drukkið nikótínvökva (18). Ef barn drekkur nikótínvökva getur það valdið öndunarstoppi og dauða.

6. „Nikótín er saklaust“ Nikótín er sterkt ávanabindandi eiturefni og er flokkað sem slíkt hjá umhverfisstofnun (19). Góð samantekt um skaðsemi nikótíns er að finna í riti bandaríska landlæknisembættisins (20). Tökum dæmi: Ef móðir neytir nikótíns í einhverju formi á meðgöngu getur heili barnsins orðið fyrir varanlegri þroskaskerðingu ásamt því að nikótínið eykur líkur á fyrirburafæðingu og andvana fæðingum. Einnig eru vísbendingar um að unglingar sem neyta nikótíns geta orðið fyrir skaðlegum áhrifum á heila (21,22).

7. „Þeir sem anda að sér óbeinum rafrettureyk eru í engri hættu“ Skaðsemi óbeinna sígarettureykinga var staðfest mörgum áratugum eftir að vitað var um skaðsemi beinna reykinga. Rannsóknir sýna að skaðleg efni í rafrettureyk greinast í umhverfi þeirra sem reykja rafrettur (23,24). Fleiri rannsóknir eru nauðsynlegar áður en hægt verður að álykta um áhrif óbeinna rafrettureykinga.

Þó svo að það sé betra fyrir sígarettureykingamann að skipta yfir í rafrettur jafngildir það ekki að það sé í lagi fyrir börnin okkar að byrja að fikta við þær. Viljum við bjóða áfram upp á eiturefni með jarðaberjabragði í sælgætisverslunum, einungis til að þóknast reykingarmönnum, eða ætlum við að vernda börnin okkar fyrir þessari „nútíma tískuvöru“?

Getur verið réttmæt ástæða fyrir því að 17 læknar og sérfræðingar í tóbaksforvörnum hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu (25) um að vera á varðbergi gagnvart rafrettum?

 

  1. https://ec.europa.eu/health/tobacco/products/index_en.htm
  2. https://www.gov.uk/guidance/e-cigarettes-regulations-for-consumer-products
  3. https://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S0091743514003739
  4. https://www.thelancet.com/journals/lancet/article/PIIS0140-6736(13)61842-5/abstract
  5. https://www.fda.gov/ForConsumers/ConsumerUpdates/ucm173401.htm
  6. https://tobaccocontrol.bmj.com/content/early/2013/03/05/tobaccocontrol-2012-050859.abstract
  7. https://www.oraloncology.com/article/S1368-8375%2815%2900362-0/abstract
  8. https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pubmed/22989551
  9. https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pubmed/26811353  
  10. https://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S1054139X15000622
  11. https://jama.jamanetwork.com/article.aspx?articleid=2428954
  12. https://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S1054139X14003103
  13. https://www.tobaccotactics.org/index.php/E-cigarettes
  14. https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pubmed/26781305
  15. https://www.cdc.gov/vitalsigns/ecigarette-ads/
  16. https://www.bmj.com/content/349/bmj.g5512
  17. https://www.jem-journal.com/article/S0736-4679(14)01461-9/abstract
  18. https://www.nejm.org/doi/full/10.1056/NEJMc1403843
  19. http://www.ust.is/library/Skrar/Atvinnulif/Reglugerdir/Efni-og-efnavara/CLP-annex_vi_tafla_3-1.pdf
  20. https://www.surgeongeneral.gov/library/reports/50-years-of-progress/sgr50-chap-5.pdf
  21. https://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S0749379715000355
  22. https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC4359356/
  23. https://journals.plos.org/plosone/article?id=10.1371/journal.pone.0057987
  24. https://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S1438463913001533
  25. /g/2016160109398



Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×