Rússneskir frjálsíþróttamenn eru sem stendur í banni frá alþjóðlegum keppnum eftir að upp komst um stórfellt og kerfisbundið lyfjamisferli hjá rússneska frjálsíþróttasambandinu.
„Ég myndi jafnvel ganga svo langt að segja að ég myndi ekki vilja keppa í Ríó ef Rússar verða með,“ sagði Sayers sem glímdi við meiðsli á Ólympíuleikunum í London fyrir fjórum árum.
„En ef þeim er heimiluð þátttaka og ég myndi ekki taka þátt væri ég að svíkja sjálfa mig um annað tækifæri á Ólympíuleikum,“ bætti hin 33 ára gamla Sayers við.

Hin rússneska Maria Abakumova, sem vann til silfurverðlauna, var ein af þeim 14 íþróttamönnum frá Rússlandi sem notuðu ólögleg lyf í Peking. Þetta kom í ljós eftir að sýni frá Ólympíuleikunum 2008 voru prófuð aftur með nýjustu tækni.
Rússneska sjónvarpsstöðin Match birti nöfn þessara 14 óhreinu Rússa en alþjóðaólympíunefndin ætlar að bíða með að opinbera þau þangað til próf á B-sýni viðkomandi íþróttafólks hefur verið framkvæmt.
Ef Abakumova verður svipt silfurverðlaunum falla þau í skaut hinnar þýsku Christinu Obergföll sem endaði í 3. sæti. Sayers myndi svo færast upp í hennar sæti og fá bronsverðlaunin.