FIFA-karlarnir hækkuðu launin sín og gáfu sér myndarlega bónusa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júní 2016 13:43 Sepp Blatter og Jerome Valcke. Vísir/Getty
Sepp Blatter, Jerome Valcke og Markus Kattner voru allir hásettir hjá FIFA áður en upp komst um spillinguna innan Alþjóðaknattspyrnusambandsins en það berast enn fréttir af græðgi æðstu manna innan FIFA. Sepp Blatter hefur nú látið af störfum sem forseti FIFA, Jerome Valcke var rekinn sem framkvæmdastjóri og Markus Kattner missti starf sitt sem fjármálastjóri.BBC segir frá því að upp hafi komist um myndarlegt peningaplokk hjá þessum valdamikla þríeyki þegar þeir réðu öllu innan veggja FIFA og virtust hafa nánast frjálsan aðgang í peninga sambandsins. Braskið komst upp í húsleit svissnesku lögreglunnar hjá FIFA í gær en þá voru mörg skjöl og rafrænar upplýsingar gerðar upptækar. Lögmenn FIFA segja að þessir þrír hafi hækkað launin sín sjálfir og borgað sér háa bónusa en þessar upphæðir voru engir smáaurar. Alls hafi þeir veitt sjálfum sér um 55 milljónir punda á fimm árum eða tæplega tíu milljarða íslenskra króna. Siðanefnd FIFA dæmdi í febrúar Sepp Blatter í sex ára bann frá fótbolta og Jerome Valcke fékk tólf ára bann. Báðir héldu þeir fram sakleysi sínu.
FIFA Fótbolti Mest lesið Orri og félagar duttu út með hádramatískum hætti Fótbolti Segir Müller eiga skilið góða kveðjustund Fótbolti „Verður vonandi tilbúinn fyrir síðustu leiki tímabilsins“ Enski boltinn „Ekki tími ársins til að fara inn í einhverja skel“ Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík 84-75 Stjarnan | Njarðvík tekur foyrsuna í kaflaskiptum leik Körfubolti Sluppu með sigur og hafa haldið oftast hreinu Enski boltinn „Þetta var alveg orðið smá stressandi“ Sport Þjálfari Sveindísar segir starfi sínu lausu Fótbolti Saka sneri aftur og skoraði í sigri Skyttnanna Enski boltinn „Verðum að nýta hvert einasta tækifæri sem við fáum“ Körfubolti Fleiri fréttir „Verður vonandi tilbúinn fyrir síðustu leiki tímabilsins“ Segir Müller eiga skilið góða kveðjustund Orri og félagar duttu út með hádramatískum hætti Saka sneri aftur og skoraði í sigri Skyttnanna Sluppu með sigur og hafa haldið oftast hreinu Þjálfari Sveindísar segir starfi sínu lausu „Búin að taka mig inn í fjölskylduna“ Úthúðar þjálfaranum: Fékk betri æfingar í flóttamannabúðunum Stúkan fær liðsstyrk í þremur kanónum Besta auglýsing Fram: Rúnar kann öll vafasömu trixin „Var meira fyrir að borða nutella úr krukkunni og spila tölvuleiki“ „Stærsta í þessu er ef Rúnar Már nær að spila meira“ Besta-spáin 2025: Vindur í Skagaseglin Sagði Fernandes að hann færi hvergi Lífvörðurinn bannaður: „Leyfið mér að hjálpa Messi“ Tárin streymdu hjá gömlu United-hetjunni „Ég veit bara að þetta er mjög vont“ 570 milljóna uppsafnað tap hjá Everton Tekjur Wrexham í hæstu hæðum Haaland væntanlega úr leik í deildinni Saka klár í slaginn á ný Fékk fjóra bakka af eggjum fyrir að vera maður leiksins Heimsóttu Hásteinsvöll: „Það eru ekkert allir sáttir við þetta“ Hvorki zombie-bit né tattú Vel vopnaðir tökumenn: „Djöfull er þetta góður klútur“ Ekki þess virði að taka áhættu með Glódísi „Maður er pínu hræddur fyrir þeirra hönd“ Glódís ekki með í landsleikjunum Besta-spáin 2025: Að finna sér nýjan samastað í tilverunni Vill hópfjármögnun fyrir Antony Sjá meira