Skoðun

Hvers vegna styð ég Guðna Th. Jóhannesson

Ísak Kári Kárason skrifar
Þegar Guðni Th. Jóhannesson tilkynnti framboð sitt þann 5. maí batt það enda á óvissu af minni hálfu. Ég hafði upplifað sama forseta í 20 ár af mínum 24 árum en hafði ekki enn fundið minn fulltrúa af þeim sem höfðu stigið fram. Loks steig Guðni fram og þar var kominn einstaklingur sem ég vissi að gæti verið forseti allra Íslendinga.

Ég naut þeirra forréttinda að vera nemandi Guðna í sagnfræðideild Háskóla Íslands þar sem kenndi af sinni stöku snilld. Guðni var þar maður fólksins innan Háskólans þar sem auðvelt og gott var að leita til hans, það voru allir nemendur sammála þessu. Ég er viss um að þessi kostur teygi sig út fyrir veggi Háskólans. Þó það hafi verið einkennileg tilfinning í fyrstu að sjá sinn gamla kennara bjóða sig fram til forseta þá sá ég fljótlega að þar er nákvæmlega sami maður að baki. Einstaklingur sem er til staðar fyrir alla, lítur jöfnum augum á fólkið í kringum sig og minnir mann á að það er leyfilegt að líta björtum augum til framtíðar.

Það gleður mig að hafa tækifæri til þess að kjósa einstakling eins og Guðna vegna þess ég hef ekki enn, þó á minni tiltölulega stuttu ævi, fylgst með einstaklingi í framboði sem leiðir baráttu sína jafn drengilega og Guðni. Það er til fyrirmyndar og tilefni fyrir ungan mann til að dást að. Hann hefur staðið af sér alls kyns ásakanir og ákveðið að kynna hugsjónir sínar um framtíð þjóðarinnar frekar en að slást í leðjunni um fortíðina. Ég lærði það í sagnfræðinni að vitneskja um fortíðina getur verið gott verkfæri fyrir ákvarðanir í framtíðinni. Guðni þekkir forsetaembætti einna best hér á landi og því á þetta sérstaklega vel við hér.

Þær misheppnuðu tilraunir til að staðsetja Guðna á hinu gamla pólitíska litrófi sýnir að hann er yfirhafinn þessa gömlu skilgreiningu og stendur ekki fyrir einn hóp frekar en annan, hann stendur ekki fyrir neina sérstaka fylkingu nema íslensku þjóðina sameinaða.  

Þegar maður fylgist með Guðna og Elizu Reid ræða við landsmenn sér maður hversu sterkt fólk er þar á ferðinni sem á auðvelt með að ná til viðmælenda sinna og fylla þá trausti. Þau hjón gefa okkur ástæðu til þess að líta björtum augum á framtíðina því Guðni ætlar að leiða þjóðina í nýja átt sem gefur okkur Íslendingum tækifæri til að byrja í raun og veru að gera upp atburðarás síðastliðinna ára í okkar sögu.

Guðni Th. yrði sá forseti sem ég gæti sagt um á mínum eldri árum „Guðni Th. já, það var minn forseti“.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×