Skoðun

Vildu þeir Lilju kveðið hafa

Gunnar Kristinn Þórðarson skrifar
Hinn 10. september var ákveðið á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins að boða til flokksþings þann 1. og 2. október næst komandi. Er þá ljóst að formaður flokksins verður kosinn og stefnumál mörkuð fyrir næstu alþingiskosningar.

Væringar innan stjórnmálaflokka síðustu ára hafa sýnt, að tíð formannsskipti eru síður en svo leið til að skapa trúverðugleika og traust gagnvart kjósendum. Kemur það til vegna þess að festa og trúverðugleiki í stjórnmálum haldast jafnan í hendur, og ef innanflokksátök eru dregin á opinberan vettvang, er það til þess fallið að skaða stjórnmálin enn frekar. Innanflokksátök og valdabarátta innan flokks á heima á vettvangi flokksins þar sem lýðræðislegir verkferlar eru virtir. Það sem skapar traust í stjórnmálum er fyrst og fremst árangur við pólitíska stefnumótun og framkvæmd, og að kjörnir fulltrúar séu stöðugir og taki vindinn í fangið þegar á móti blæs.

Nú hefur komið í ljós að árásir á Sigmund Davíð Gunnlaugsson, vegna Panamaskjalanna, var öðru fremur byggð á sviksemi og óheiðarlegum vinnubrögðum Kastljóss og blaðamanna Reykjavík Media. Engar af þeim ásökunum sem hafa verið bornar á Sigmund hafa átt við rök að styðjast, og má segja fullum fetum, að Sigmundur hafi þurft að stíga til hliðar sem forsætisráðherra á grundvelli ósanninda og óheilinda tiltekinna blaðamanna.

Á grundvelli þeirrar atburðarrásar, hafa andstæðingar Sigmundar brotið hefðir innan Framsóknarflokksins og dregið vopn sín úr slíðrum á opinberum vettvangi, í stað þess að treysta á reglur lýðræðis innan flokksins. Ljóst má vera að andstæðingar Sigmundar gera það ekki til að auka trúverðugleika flokksins, heldur til að koma sér og sínum til valda og áhrifa. Framganga þeirra hefur þegar skaðað trúverðugleika flokksins.

Afrek Sigmundar Davíðs á sviði efnamagsmála eru bæði merk og ótvíræð, og má á framgöngu anstæðinga Sigmundar sjá, að jafnvel þeir viðurkenna glæsilegan árangur hans í starfi formanns Framsóknarflokksins. Má á málflutningi þeirra ráða að óheiðarleg vinnubrögð blaðamanna þoki þeim árangri til hliðar þegar trúverðugleiki og traust gagnvart kjósendum er metinn. Er sú afstaða fráleidd í mínum huga og lykta nú væringar innan flokksins af valdabrölti fremur en að hagsmunir flokks og þjóðar séu höfð að leiðarljósi.

Mikilvægt er að árétta að lítill sómi og trúverðugleiki er í því fólginn að komast til valda og áhrifa á grundvelli árangurs þess fulltrúa sem verið er að reyna að koma frá völdum. Ef svo ólíklega vill til að Sigmundur verður felldur á næsta flokksþingi, mun öllum vera það ljóst, að árangur flokksins er ekki þeim formanni að þakka.

Hafi flokksmenn hagsmuni flokks og þjóðar að leiðarljósi, mun Sigmundur Davíð leiða Framsóknarflokkinn í gegnum næstu alþingiskosningar.

Höfundur er stjórnsýslufræðingur og skipar 5. sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×