Skoðun

Reiknum nú rétt fyrir heimilin

Elsa Lára Arnardóttir og Gunnar Bragi Sveinsson skrifar
Hagstofan hefur vanreiknað vísitölu neysluverð í hálft ár. Ástæða þess er að í útreikningum Hagstofunnar var reiknuð húsaleiga vanmetin. Í áður birtum útreikningum Hagstofunnar var verðbólga mæld 0,9 % þar sem stuðst var við vísitölu neysluverðs. En ef reiknað hefði verið út frá samræmdri vísitölu, líkt og gert er í OECD ríkjunum, þá hefði verðbólga verið – 0,9 %. Það er vegna þess að í samræmdri vísitölu neysluverðs er húsnæðisliðurinn ekki inni. Þar er hann skilgreindur sem fjárfesting en ekki neysla, líkt og hann er skilgreindur hér á landi.

Samkvæmt áður birtum tölum Hagstofunnar þá hefðu verðtryggðar skuldir heimilanna lækkað um 18 milljarða á síðustu 12 mánuðum, ef við hefðum reiknað út frá samræmdri vísitölu neysluverðs. Í stað þess hækkuðu þær um 18 milljarða því við reiknum út frá vísitölu neysluverðs.

Hagstofan birti hins vegar nýja útreikninga fyrir skömmu síðan, því eins og áður segir voru mistök gerð í útreikningum vísitölunnar. Þar kemur fram að verðbólga síðustu 12 mánaða mælist nú 1,8 % því reiknað er út frá vísitölu neysluverðs. Verðbólgan væri 0,4 % ef stuðst væri við samræmda vísitölu neysluverðs.

Gríðarlegur munur er á þessum útreikningum Hagstofunnar og munu þessi áhrif m.a. birtast á verðtryggðum fjárskuldbindingum heimila í landinu.

Vegna þessara mistaka er upplagt að okkar mati að endurskoða þau viðmið sem vísitalan er reiknuð út frá. Okkur langar í þessu samhengi að minnast á þingsályktunartillögu sem Framsóknarmenn lögðu fram í vor.

Þar er fjármála – og efnahagsráðherra falið að skipa starfshóp óháðra sérfræðinga sem greini kosti og galla þess að gera breytingar á útreikningi vísitölu ( verðbólgu og verðtryggingar) þannig að framvegis verði notuð samræmd vísitala neysluverðs í stað vísitölu neysluverðs. Við greiningarvinnuna verði sérstaklega horft til þess hvernig verðbólga er mæld í helstu viðskiptalöndum Íslands og metið hvaða áhrif breytingin hefði á launakjör, lánakjör, stöðu verðtryggðra lána og vexti.

Við Framsóknarmenn höfum kallað eftir því að þetta mál komist á dagskrá þingsins fyrir þinglok. Við trúum ekki öðru en að aðrir stjórnmálaflokkar séu okkur sammála. Það tekur enga stund að koma þessu máli í ferli. Hér er um afar hógværa tillögu um að ræða en hún er getur skipt miklu máli fyrir heimili landsins.

Elsa Lára Arnardóttir - þingmaður Framsóknarflokksins og skipar 2. sæti á lista flokksins í NV kjördæmi.

Gunnar Bragi Sveinsson - sjávarútvegs – og landbúnaðarráðherra og skipar 1. sæti á lista Framsóknarflokksins í NV kjördæmi 




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×