Ýmist í ökkla eða eyra á Vesturlandinu í körfunni í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. október 2016 19:30 Fulltrúar liðanna átta í Domino's deild kvenna 2016-17. Mynd/KKÍ
Snæfell og Skallagrímur eru í fyrsta sinn með bæði karla- og kvennaliðin sín í úrvalsdeildunum á sama tíma en karla- og kvennaliðum félagsins er spáð mjög ólíku gengi í vetur. Körfuknattleikssambandið gaf út í dag sína árlegu spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna liðanna í Dominos-deildum karla og kvenna en keppni í þeim hefst í vikunni. Í Domino´s deild kvenna er Snæfelli spáð fyrsta sæti og nýliðunum Skallagríms er síðan spáð öðru sætinu. Samkvæmt spánni gæti því orðið Vesturlandsslagur í lokaúrslitunum í ár. Snæfell hefur orðið Íslandsmeistari undanfarin þrjú ár og Skallagrímur vann 1. deildina í fyrravetur. Bæði liðin fengu því gull um hálsins síðasta vor. Karlaliðin enda aftur á móti á hinum enda töflunnar ef marka má þessa spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna liðanna. Þar er karlaliði Snæfells spáð neðsta sætinu í Domino´s deild karla og nýliðar Skallagríms verða að sætta sig við það að falla aftur niður í 1. deildina. Munurinn er gríðarlegur hjá liðunum úr Stykkishólmi en Ingi Þór Steinþórsson þjálfari einmitt bæði liðin. Stelpurnar fengu yfirburðarkosningu í efsta sætið en strákarnir voru aftur á móti langneðstir.Spáin í Domino’s deild kvenna: 1. Snæfell 186 stig 2. Skallagrímur 141 stig 3. Grindavík 133 stig 4. Stjarnan 118 stig 5. Valur 105 stig 6. Keflavík 100 stig 7. Haukar 46 stig 8. Njarðvík 37 stigSpáin í Domino’s deild karla: 1. Stjarnan 404 stig 2. KR 403 stig 3. Tindastóll 358 stig 4. Þór Þ. 282 stig 5. Njarðvík 251 stig 6.-7 Haukar 223 stig 6.-7. Þór Ak. 223 stig 8. Keflavík 205 stig 9. ÍR 168 stig 10. Grindavík 148 stig11. Skallagrímur 96 stig12. Snæfell 44 stigFulltrúar liðanna tólf í Domino's deild karla 2016-17.Mynd/KKÍ
Dominos-deild karla Dominos-deild kvenna Mest lesið Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM Handbolti Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Fótbolti Kærður fyrir ofbeldi gegn syni sínum Sport Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Fótbolti Jenas missir annað starf Fótbolti Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Fótbolti Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Fótbolti Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM Handbolti Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Enski boltinn Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Handbolti Fleiri fréttir Finnskur landsliðsmaður til Keflavíkur Martin: Ætlaði alltaf að verða ungur faðir eins og pabbi sinn Botnliðið fær landsliðsmann Aþena lagði Grindavík Haukar voru betri í dag Uppgjörið: Haukar - Keflavík 100-83 | Þægilegur Haukasigur í stórleiknum „Mikilvægasti sigur í sögu íslensks körfubolta“ Aðalkeppinautar Íslands um sæti á EM skoruðu ótrúlega körfu Umboðsmaðurinn sérstaki sem kom með fyrstu Kananna til landsins Tvær tvöfaldar þrennur í sigrum Tindastóls og Þórs Akureyrar „Þessi deild er bara þannig að það er ekkert gefins“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 77-67 | Grænar unnið fimm í röð Albert sá sögulegan sigur strákana okkar og Martin stríddi Ítölum Vaknaði með harðsperrur: „Þetta var bara stórkostlegt“ Stærstu sigrar íslenska körfuboltalandsliðsins í gegnum tíðina Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Elvar: Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir Kristinn: Við vorum geggjaðir Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Lögmál leiksins: „Leifur, ertu með glósur?“ Dwayne Lautier á leið í aðgerð og verður frá í 6-8 vikur Sneri aftur í landsliðið í fyrsta sinn eftir að hafa misst nýrað Kallaði dómarann tík og rúmlega það LaMelo Ball í 50-stiga klúbbinn Björgvin aftur í Breiðholtið Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Hefur Ben Simmons náð botninum? Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Aðalþjálfari Ítalíu var með hausverk og horfði ekki á seinni hálfleik Sjá meira