Skoðun

Forsendur ferðaþjónustu og stefna VG

Jakob S. Jónsson skrifar
Í ferðamálastefnu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs segir um Ísland: „Það er eitt yngsta land í heimi og hefur að geyma aðgengilegar og óaðgengilegar óbyggðir og víðerni sem eiga fáa sinn líka. Náttúra landsins er einstök og jafnframt viðkvæm.“ Þetta á að vera lykilatriði í allri ferðaþjónustu á Íslandi. Náttúru landsins skal sýnd nærgætni og virðing, enda er hún einstök; hún er enn í sköpun og mótun og er sem slík áhugavert lærdómsefni bæði okkur heimamönnum og ferðamönnum sem koma frá eldri og grónari löndum.

Náttúra Íslands er ekki eingöngu landið heldur líka hafið umhverfis og lífríki þess, sem er nálægt sjö sinnum stærra en landið sjálft. Þeir sem til þekkja segja að við höfum þekkingu á u.þ.b. 5% þess, sem býr í hafinu, annað er okkur ennþá hulið. Það er gríðarleg áskorun að takast á við að auka þekkingu okkar á þessum leyndardómi sem er umhverfis landið okkar og gera þá þekkingu aðgengilega okkur sjálfum og erlendum gestum okkar.

Ísland á alla möguleika á því að vera leiðandi þegar kemur að því að veita ferðaþjónustu tilgang umfram afþreyingu. Einkafyrirtæki eru þegar farin að leggja grunn að ferðaþjónustu sem hefur vistkerfið og fjölbreytileik lífríkisins sem viðfangsefni sitt. Sú ferðaþjónusta er í mótun og nú þurfa stjórnvöld að koma á móti með markvissri ferðamálastefnu, sem gerir ráð fyrir eflingu rannsókna á lífríki lands og sjávar, náttúruvernd sem forsendu ferðaþjónustu, eflingu landvörslu og orkuskiptum í samgöngum. Auk þess þarf að stórauka menntun á öllum skólastigum um sérstöðu landsins, vistkerfi þess og haldbæra móttöku ferðamanna.

Kannanir sýna að ferðamenn sækja í auknum mæli í menningu lands og sögu og hér eiga allar byggðir lands sóknartækifæri. Ferðaþjónusta, sem byggir á list og sögu verður ekki efld nema á forsendum hverrar byggðar og með því að heimafólk á hverjum stað sé í forsvari fyrir uppbyggingu og skipulagi slíkrar ferðaþjónustu. Hið opinbera þarf að tryggja að stofnanaumgjörðin þjóni þeirri uppbyggingu.

Uppbygging af þessu tagi kallar á fagmenntuð störf í leiðsögn og fræðslu, gjarnan í samræmi við evrópustaðal um leiðsögunám, sem segir að leiðsögumaðurinn sé túlkandi landsins, náttúrunnar, sögunnar og menningarinnar. Þá þarf að tryggja að skipulagðar ferðir erlendra ferðamanna séu ávallt með íslenskri leiðsögn.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð vill ferðaþjónustu sem byggir á samvinnu aðila í atvinnugreininni enda snýst ferðaþjónusta um að fólk vinni fyrir fólk. Íslensk ferðaþjónusta hefur allt sem þarf til að verða samfélagsafl í þágu jákvæðrar atvinnuuppbyggingar, náttúruverndar og betra mannlífs.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×