Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Pírata, segir að aðeins herslumuninn vanti upp á svo það takist að mynda fimm flokka ríkisstjórn. Hún telur að um 90 prósent líkur eru á því að flokkunum takist að mynda ríkisstjórn fyrir næsta föstudag. Birgitta var í viðtali í Vikunni hjá Gísla Marteini Baldurssyni á RÚV í kvöld.
Vika er nú liðin síðan Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands veitti Birgittu umboð til stjórnarmyndunar og hafa Píratar, Samfylkingin, Björt Framtíð, Viðreisn og Vinstri Græn verið í óformlegum viðræðum um myndun fimm flokka stjórnar síðan þá.
„Við erum bara komin með alls konar frábæra hluti. Það vantar bara herslumuninn,“ sagði Birgitta.
„Við komum frá rosalega ólíkum kúltúrum. Þetta er eins og ólík lönd sem eru að hittast í fyrsta skipti og við þurfum svolítið að læra á hvort annað. Ef maður ætlar að gera eitthvað sam á að endast þá þarf að vanda sig svolítið við að gera til sterkt upphaf.“
Gísli Marteinn spurði Brigittu því næst hverjar líkurnar væru á að flokkunum tækist að mynda ríkisstjórn fyrir næsta föstudag
„Næsta föstudag? Ég myndi skjóta á svona níutíu prósent. Ég er náttúrulega rosalega bjartsýn manneskja og ef maður hefur ekki trú á þessu og orkuna til að gera þetta og finnst þetta ekki þess virði að vera eyða öllum sína „frítíma“ í þá væri ég ekkert að þessu. Ég myndi aldrei nenna að sitja á svona fundum ef ég sæi engan tilgang með þeim.“
Búist er við að flokkarnir fimm haldi óformlegum viðræðum áfram um helgina.
Birgitta: 90 prósent líkur á fimm flokka stjórn

Tengdar fréttir

Píratar fá stjórnarmyndunarumboðið
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hefur veitt Birgittu Jónsdóttur Pírata stjórnarmyndunarumboðið.

Píratar stefna á að endurvekja viðræður um fimm flokka stjórn
Píratar stefna á að endurvekja viðræður á milli Pírata, VG, Viðreisnar, Bjartrar framtíðar og Samfylkingar sem sigldu í strand í síðustu viku.

Morgundagurinn ræður úrslitum varðandi það hvort flokkarnir fimm fara í formlegar viðræður
Það mun ráðast á morgun hvort að Píratar, Vinstri grænir, Samfylkingin, Viðreisn og Björt framtíð muni hefja formlegar viðræður um myndun nýrrar ríkisstjórnar.

Ætla að halda viðræðum áfram um helgina
Fundi forystumanna Bjartrar framtíðar, Viðreisnar, Pírata, Vinstri grænna og Samfylkingarinnar lauk klukkan hálfsex í dag og hafa þeir tekið ákvörðun um að halda óformlegum stjórnarmyndunarviðræðum áfram yfir helgina.