
Stoilov: Megi betra liðið vinna
Þessi öflugi línumaður skoraði þrjú mörk í gærkvöldi. Enginn í liðinu hefur spilað jafnmargar mínútur og þessi 110 kílóa þungi kappi sem er næstmarkahæstur í liði Makedóna með 15 mörk auk þess sem hann hefur fiskað nokkur vítaköst.
„Þegar við vorum farnir að þreytast höfðu þeir fleiri og reyndari leikmenn til að koma inn á auk þess sem Vargas var frábær í markinu hjá þeim. Alltaf þegar við spilum eru mótherjanir með frábæran markvörð, það eru álög..
Nú spilar þú gegn mínu liði á morgun hvað ætlar þú að gera?
„Ég veit það ekki. Þetta er mikilvægur leikur og ég vona að hann verði frábær. Megi betra liðið vinna.“
Við þurfum að vinna, þið eruð öruggir áfram.
„Já, en við viljum ekki skilja sem óvinir það gengur ekki,“ sagði hinn geðþekki línumaður og varnarjaxl Makedóníumanna, Stojanche Stoilov.
Ekki missa af neinu sem gerist á HM í Frakklandi. Vísir er með öflugt fréttateymi á mótinu sem færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).
Tengdar fréttir

Frábært að þetta er í okkar höndum
Það er allt undir hjá strákunum okkar í dag þegar þeir spila lokaleik sinn í riðlakeppni heimsmeistaramótsins gegn Makedóníumönnum.

Björgvin: Lazarov má skora 30 mörk svo lengi sem við vinnum
"Það er mikil tilhökkun fyrir leikinn í kvöld,“ segir Björgvin Páll Gústavsson markvörður sem er búinn að spila flestar mínúturnar í íslenska landsliðinu á HM.

Með nöfn barnanna á skónum: „Þetta er uppáhaldsparið mitt“
Rúnar Kárason skrifaði nöfn barnanan sinna á skópar til að vita hvor væri hvað.

HM-pistill: Stund sannleikans runnin upp fyrir strákana okkar
Strákarnir okkar þurfa sigur á móti Makedóníu í kvöld til að forðast leik gegn Frökkum í 16 liða úrslitum.

HM í dag: Arnar þreif gólfið í keppnishöllinni
Síðasti leikur Íslands í riðlakeppni HM fer fram í dag og okkar menn í Frakklandi rýna í spilin.

Hlutkesti gæti ráðið örlögum strákanna okkar í dag
Ísland leikur í kvöld lokaleik sinn í riðlakeppni HM. Fjögur efstu lið hvers riðils fara áfram í 16-liða úrslitin en hin tvö í Forsetabikarinn. Þetta eru möguleikar Íslands í kvöld miðað við að Túnis vinni Angóla í dag:

Verðum fljótt komnir með hörkulandslið aftur
Rúnar Kárason er í stóru ábyrgðarhlutverki hjá íslenska landsliðinu á HM. Þetta er hans fyrsta stóra tækifæri með landsliðinu og hann hefur nýtt það vel.

Hrokafullur Lazarov flúði frá íslenskum fjölmiðlum
Stórstjarna Makedóníu, Kiril Lazarov, vann sér ekki inn marga punkta hjá íslenskum fjölmiðlum í kvöld með hegðun sinni eftir tap Makedóníu gegn Spáni í kvöld.