
Ferðamenn og umhverfisáhrif
Spár Íslandsbanka gera ráð fyrir 35% fjölgun á þessu ári eða tæplega 2,4 milljónum erlendra ferðamanna. Þessum mikla fjölda fylgja áskoranir fyrir alla sem að þessari atvinnugrein koma. Í þessum greinarstúfi bendi ég á fimm atriði sem ný ríkisstjórn og ferðaþjónustuaðilar verða að taka föstum tökum þegar kemur að náttúruvernd og ferðaþjónustu.
1. Uppbygging innviða til verndar náttúru.
Mikið hefur verið fjallað um álag á helstu ferðamannastaði og nauðsyn þess að byggja innviði náttúrunni til verndar. Er þá m.a. vísað í palla, göngustíga og salerni. Þessari vinnu þarf víða að hraða til muna. En ekki má gleyma að efla fagþekkingu á þessu sviði, sem því miður hefur orðið útundan, svo tryggja megi að innviðir falli vel að landslagi og þeirri náttúru sem þeim er ætlað að vernda. Aukin landvarsla, öryggi ferðamanna og fræðsla falla auðvitað undir hér líka.
2. Takmörkun á aðgangi?
Íhuga þarf að takmarka aðgang að sumum stöðum í stað þess að auka álagsþol þeirra með uppbyggingu innviða, einfaldlega vegna þess að annars gætu þeir misst aðdráttaraflið sem dregur fólk að þeim. Hið opinbera þarf í samvinnu við ferðaþjónustuna, náttúruverndar- og útivistarfólk að kortleggja þessa staði og leggja fram tillögur um aðgangsstýringu sem mismunar ekki fólki.
3. Innviðir ferðaþjónustunnar sjálfrar.
Hið opinbera þarf að móta skýrari leikreglur um uppbyggingu gistiaðstöðu og annarrar þjónustu á náttúruverndarsvæðum og öðrum eftirsóttum stöðum í eigu ríkisins.
Lykilatriðið er að byggt sé utan svæðanna, ekki inni á þeim eða í allra næsta nágrenni þeirra. Á verndarsvæði Mývatns- og Laxár eru nokkur dæmi um það að stór ný hótel hafi risið, eldri hótel verið stækkuð og önnur eru í byggingu eða áformuð allt of nálægt því lífríki sem verið er að vernda, Mývatni sjálfu. Mikið álag er nú þegar á vistkerfi vatnsins m.a. vegna mengunar frá mannabyggð og alröng þróun að auka það álag með þessum hætti.
Miðhálendið er annað dæmi um afar viðkvæmt svæði að þessu leyti. Þar sýna kannanir að innan við 10% ferðamanna telja hótel samrýmast hugmyndum um víðerni og óbyggðaupplifun, sem er einmitt það sem þeir sækjast helst eftir á svæðinu. Nú þegar er hafin endurgerð og nýbygging gistiaðstöðu í Ásgarði við Kerlingarfjöll fyrir allt að 340 manns, þar af 240 í einni hótelbyggingu. Áform eru uppi um byggingu 80-140 manna gistiaðstöðu á Hveravöllum og einnig eru hugmyndir um byggingu allt að 120 manna gistiaðstöðu á Landmannalaugasvæðinu. Til samanburðar tekur Hótel Saga í Reykjavík að hámarki 470 manns í gistingu.
Er rétt að auka framboð á gistingu inni á hálendinu eða ætti frekar að byggja hana á láglendi nálægt jaðri hálendisins? Þessi þróun er hið minnsta umhugsunarverð og lykilatriði að hálendið verði ekki láglendisvætt.
4. Kolefnishlutlaus ferðaþjónusta.
Aukning í útlosun gróðurhúsalofttegunda sem valda loftslagsbreytingum er sérstakt viðfangsefni ferðaþjónustuaðila, ekki síst í flugi, hópferðum og hjá bílaleigum. Ein meginregla alþjóðlegs umhverfisréttar, svokölluð mengunarbótaregla (e. polluter pays principle), krefur þann sem veldur mengun að greiða fyrir hana og bera þannig ábyrgð á starfsemi sinni. Ferðaþjónustuaðilar ættu að setja sér metnaðarfull markmið þar sem tekin eru markviss og tímasett skref í átt að kolefnishlutlausri starfsemi. Ávallt skyldi flug- og bílaflotinn þannig útbúinn að mengun af starfseminni verði sem minnst, t.d. með sem umhverfisvænstri tækni. Kolefnishlutleysi yrði síðan náð með landgræðslu, endurheimt skóga og votlendis.
5. Friðlýsingar sem stjórntæki í ferðaþjónustu.
Landvernd hefur ítrekað bent á kosti þess að nýta friðlýsingar í ríkara mæli sem stjórntæki í ferðaþjónustu, ekki síst þegar um er að ræða svæði með viðkvæma náttúru. Þjóðgörðum og öðrum vernduðum svæðum er stýrt með náttúruvernd að leiðarljósi. Skipulag og umferðarstýring dregur úr líkum á skemmdum vegna ágangs ferðamanna og þau verða til langs tíma eftirsóttar vinjar fyrir hugarró og hvíld. Langtímahagsmunir náttúruverndar og ferðaþjónustu fara þannig saman. Stærsta verkefnið fram undan er stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands, sem er sameiginlegt baráttumál náttúruverndar- og útivistarsamtaka og Samtaka ferðaþjónustunnar.
Ný ríkisstjórn þarf að skoða hvort og þá hvernig megi takmarka fjölda ferðamanna sem koma til Íslands á meðan tekist er á við helstu áskoranir ferðaþjónustunnar. Ég óska nýrri ríkisstjórn og ferðaþjónustunni allri velfarnaðar í þeirri mikilvægu vinnu sem fram undan er.
Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Tengdar fréttir

Aldrei fleiri ferðamenn komið til Íslands: Spyr hvort fjölgunin sé heppileg vegna álags á náttúruna
Framkvæmdastjóri Landverndar hefur áhyggjur af mikilli fjölgun ferðamanna hér á landi síðustu ár.
Skoðun

Mannúð og hugrekki - gegn stríðsglæpum og þjóðarmorði
Ólafur Ingólfsson skrifar

Framtíð menntunar – byggjum á trausti, ekki tortryggni
Helga Kristín Kolbeins skrifar

Fé án hirðis
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Gæludýr geta dimmu í dagsljós breytt
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Myllan sem mala átti gull
Andrés Kristjánsson skrifar

Sjö mýtur um loftslagsbreytingar
Kristinn Már Hilmarsson,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar

Pírati pissar í skóinn sinn
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Ógnin sem við sjáum ekki – Hið falda tungumál ungu kynslóðarinnar á netinu
Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar

Fáum presta aftur inn í skólana
Rósa Guðbjartsdóttir skrifar

Rösk og reiðubúin fyrir landsbyggðina
Hópur Röskvuliða skrifar

Icelandic Learning is a Gendered Health Issue
Logan Lee Sigurðsson skrifar

Goðsögnin um UFS-sjóði sem róttækar „woke"- fjárfestingar
Már Wolfgang Mixa skrifar

Framtíð Öskjuhlíðar
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Vanhæfur Sjálfstæðisflokkur
Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Mælt fyrir miklum kjarabótum öryrkja og aldraðra
Inga Sæland skrifar

Mannréttindabrot og stríðsglæpir Rússa í Úkraínu
Erlingur Erlingsson skrifar

Áskorun til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Háskóla Íslands
Ríkharður Ólafsson,Styrmir Hallsson skrifar

Ákvarðanir teknar í Reykjavík – afleiðingarnar skella á okkur
Hópur Framsóknarmanna í sveitarstjórnum skrifar

Snjallborgin eða Skuggaborgin Reykjavík: Gervigreindarknúið höfuðborgarsvæði
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Getur Sturlunga snúið aftur?
Leifur B. Dagfinnsson skrifar

Vaka stendur með Menntavísindasviði í verki
Gunnar Ásgrímsson skrifar

Vorbókaleysingar
Henry Alexander Henrysson skrifar

Er þetta í alvöru umdeild skoðun fámenns hóps?
Snorri Másson skrifar

Liðveisla fyrir öll
Atli Már Haraldsson skrifar

Réttur til endurtektarprófa: Jafnræði í námi fyrir alla stúdenta
Vera Mist Magnúsdóttir,Guðlaug Eva Albertsdóttir skrifar

Að standa við stóru orðin
Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar

Aðför að landsbyggðinni – og tilraun til að slá ryki í augu almennings
Ingibjörg Isaksen skrifar

Deyr mjólkurkýrin ef eigandi hennar fær eitt viðbótar mjólkurglas?
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Kynlíf veldur einhverfu: Opið bréf til Háskóla Íslands og fjölmiðla
Guðlaug Svala Kristjánsdóttir,Margrét Oddný Leópoldsdóttir skrifar

Ég virði þig og þín mörk, virðir þú mig og mín mörk ?
Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar