Kristján Arason: Eigum að gera kröfu á 3. sætið í riðlinum
Ísland er með Spáni, Slóveníu, Túnis, Makedóníu og Angóla í riðli á HM. Fjögur efstu liðin í riðlinum komast áfram í 16-liða úrslit.
„Mér finnst sanngjarnt að gera kröfu um 3. sætið í riðlinum, meira en það er eiginlega ósanngjarnt. Slóvenía og Spánn eru sterkari en við í dag og með tilbúnari lið,“ sagði Kristján í samtali við Guðjón Guðmundsson í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Enn er óljóst hvort Aron Pálmarsson leiki með íslenska liðinu á HM en hann hefur glímt við nárameiðsli á undanförnum vikum.
„Ég vona að hann nái að spila 30-50%, að hann þurfi ekki alltaf að spila 60 mínútur, heldur fái sína hvíld. Þetta eru leiðinleg meiðsli og hann mun ekki geta spilað 60 mínútur,“ sagði Kristján.
Hann var ánægður með frammistöðu yngri leikmannanna í íslenska liðinu í Bygma bikarnum í Danmörku. Nú taki alvaran hins vegar við.
„Það reynir á menn. Það sést hvernig menn eru farnir að útfæra og horfa á leiki andstæðinganna. Janus [Daði Smárason] átti mjög góðan leik á móti Ungverjum og kom virkilega á óvart. En svo kom Gummi Gumm með myndböndin og danska liðið var búið að lesa hann. Svona er handboltinn í dag, menn verða að geta brugðist við því sem andstæðingurinn er að hugsa,“ sagði Kristján.
Hann segir varasamt að draga of miklar ályktanir af stórtapinu fyrir Ólympíumeisturum Dana á sunnudaginn. Munurinn á liðunum sé einfaldlega svona mikill.
„Það var kannski einn leikmaður í íslenska liðinu sem hefði komist í það danska, þannig við skulum vera alveg sanngjarnir. En þegar líða fór á leikinn var eins og leikmenn sem voru að berjast um sæti í hópnum væru hræddir við að gera mistök. Það vantaði alla áræðni og hana má ekki vanta á stóra sviðinu,“ sagði Kristján að lokum.
Fréttina má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Tengdar fréttir

Góð fjárfesting til framtíðar
Strákarnir okkar hefja leik á HM eftir tvo daga. Þrír ungir strákar fengu mikilvægar mínútur á æfingamótinu í Danmörku og stóðu sig vel. Einar Andri Einarsson, þjálfari Aftureldingar, tekur stöðuna fyrir Fréttablaðið.

Ein af stjörnum Slóvena semur við Barcelona
Slóvenski landsliðsmaðurinn Jure Dolenec hefur gert fimm ára samning við Barcelona.

Umfjöllun: Ísland - Danmörk 26-34 | Rassskelling í síðasta leiknum fyrir HM
Ísland steinlá fyrir Danmörku, 26-34, í síðasta leiknum í Bygma bikarnum í handbolta í Árósum í kvöld.

Umfjöllun: Ísland - Ungverjaland 27-30 | Kaflaskipt í tapi fyrir Ungverjum
Ísland tapaði fyrir Ungverjalandi, 27-30, í öðrum leik sínum í Bygma bikarnum í Skjern í dag.

Þetta er náttúrulega bara ótrúlegur leikmaður
Guðjón Valur Sigurðsson hefur verið inn á vellinum í meira en 6500 mínútur með íslenska landsliðinu á stórmótum. Undanfarin sautján ár hefur Guðjón Valur alltaf verið til taks og tilbúinn að gefa allt sitt fyrir íslenska landsliði

Ungu strákarnir lofa góðu en varnarleikurinn er enn þá til vandræða
Einar Andri Einarsson fer yfir undirbúning íslenska handboltalandsliðsins á æfingamótinu í Danmörku.

B-landsliðið fær kærkomna leiki
B-landslið karla í handbolta spilar tvo vináttulandsleiki við Grænland um næstu helgi.

Tandri Már ekki með á HM | Vignir heim vegna veikinda
Sextán leikmenn fara með íslenska landsliðinu á HM í Frakklandi sem hefst á miðvikudag.

Rassskellur á móti Dönum er enginn heimsendir
Íslenska handboltalandsliðið fer inn á HM í Frakklandi með átta marka tap á bakinu en strákarnir okkar voru nokkrum númerum of litlir á móti Ólympíumeisturum Dana í gærkvöldi. Verkefnið verður ekkert mikið léttara í fyrsta leik liðsins á Heimsmeistaramótinu.

Umfjöllun: Ísland - Egyptaland 30-27 | Góð byrjun í Bygma bikarnum
Ísland vann þriggja marka sigur, 30-27, á Egyptalandi á Bygma Cup, æfingamóti í Danmörku, í dag.