Fyrir eiga hjónin börnin North og Saint. Báðar ólétturnar hennar Kim gengu erfiðlega fyrir sig. Hún þurfti nokkrum sinnum að vera flutt upp á spítala vegna ýmissa fylgikvilla sem hefðu getað verið skaðleg bæði fyrir barnið og hana. Læknar hafa sagt henni að það geti verið hættulegt fyrir hana að verða aftur ólétt en það er spurning hvort að hjónin láti verða að því.
Í klippunni hér fyrir neðan segir hún frá því að henni langi þó að eignast þriðja barnið, enda hefur hana alltaf langað í stóra fjölskyldu.