Nýjasta undirfatafyrirsæta Calvin Klein er 73 ára Ritstjórn skrifar 19. apríl 2017 19:00 Lauren Hutton í auglýsingunni. Mynd/Skjáskot
Hin 73 ára Lauren Hutton er ein af nýjustu andlitum undirfatalínu Calvin Klein. Í nýrri auglýsingu, sem leikstýrð er af Sofiu Coppola, má sjá fjölbreytt úrval fyrirsæta. Á meðal þeirra sem koma fram eru bæði þekkt sem og óþekkt andlit. Leikkonurnar Kirsten Dunst og Rashida Jones sitja fyrir ásamt fleirum fyrirsætum sem voru sérvaldar af Coppola. Undirfataauglýsingar Calvin Klein hafa ávallt verið vinsælar og eftirminnilegar. Kate Moss og Mark Wahlberg gerðu allt vitlaust á tíunda áratuginum. Justin Bieber hefur einnig verið andlit undirfatalínunnar ásamt Kendall Jenner og Bellu Hadid. Lauren var lengi vel ein þekktasta fyrirsæta Bandaríkjana og það er óhætt að segja að hún taki sig einstaklega vel út í auglýsingunni sem má sjá hér fyrir neðan.
Mest lesið Heimsfrægar forsíðustúlkur ASOS Glamour Emanuele Farneti verður ritstjóri ítalska Vogue Glamour Sarah Jessica Parker snýr aftur á skjáinn Glamour Chanel byggði geimfar fyrir tískusýningu sína Glamour Kallaðu mig Caitlyn Jenner Glamour Kaia Gerber hannar fyrir Karl Lagerfeld Glamour Klæddist breskri hönnun Glamour Endurgerðu Victoria's Secret sýninguna með konum í öllum stærðum Glamour Sakar Saint Laurent um að herma eftir Kanye West Glamour Danssýning á tískupallinum Glamour