Þá liggur ekki fyrir hvort að hluturinn fljúgandi var kominn inn í lofthelgi Ísraels.
Sjá einnig: Skutu ódýran dróna með rándýrri eldflaug
Fyrr í dag voru Ísraelar sakaðir um eldflaugaárás á herstöð nærri Damaskus í Sýrlandi. Herinn hefur ekki viðurkennt að hafa framkvæmt árásina, en njósnamálaráðherra ríkisins, Yisrael Katz, segir að slík árás hefði verið í samræmi við stefnu Ísrael um að koma í veg fyrir vopnaflutninga til Hezbollah-samtakanna.
Meðlimir Hezbollah berjast með stjórnarher Bashar al-Assad í Sýrlandi og Ísrael hefur gert þó nokkrar árásir í Sýrlandi frá því að átökin hófust þar í landi árið 2011. Flestar þeirra munu hafa verið á vopnasendingar til Hezbollah.