Thomas Møller Olsen við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjaness á dögunum.vísir/vilhelm
Verjandi Thomas Frederik Møller Olsen, þrítugs Grænlendings sem ákærður er fyrir að hafa banað Birnu Brjánsdóttur, lagði í morgun fram tvær matsbeiðnir við fyrirtöku í málinu í Héraðsdómi Reykjaness. Annars vegar vill hann fá að leggja fimm spurningar fram fyrir réttarmeinafræðing og hins vegar tvær spurningar fyrir bæklunarlækni.
Verjandinn, Páll Rúnar M. Kristjánsson, vildi í samtali við fréttamann í héraðsdómi ekki upplýsa hvað hann vildi sýna fram á með dómskvöddu matsmönnunum tveimur. Þeir verða dómkvaddir við næstu fyrirtöku í málinu sem verður á þriðjudaginn eftir viku.
Kolbrún Benediktsdóttir, varahéraðssaksóknari, og Páll Rúnar M. Kristjánsson, verjandi Thomasar, í dómsal í morgun.vísir/anton brinkVið fyrirtökuna í morgun lagði Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari, sem sækir málið, fram viðbótargreinargerð vegna farsíma Thomasar. Gögnin varða staðsetningar við notkun hans á farsímanum. Hún boðaði að frekari símagögn yrðu lögð fram í málinu.
Ekki hefur verið ákveðið hvenær aðalmeðferð í málinu fer fram en reikna má með því að það verði í fyrsta lagi í júní. Thomas neitar sök í málinu en auk þess að vera ákærður fyrir manndráp sætir hann ákæru fyrir stórfelldan fíkniefnainnflutning.
Thomas hefur að því er fram kemur í skýrslum lögreglu viðurkennt að hafa verið með Birnu umrætt kvöld, kysst hana en segist ekki hafa banað henni. Hann var ekki viðstaddur fyrirtökuna í morgun.
Thomas Frederik Møller Olsen, þrítugur Grænlendingur og skipverji af grænlenska togaranum Polar Nanoq, hefur verið ákærður fyrir að bana Birnu Brjánsdóttur.