Kjörstaðir í Frakklandi opnuðu klukkan átta að staðartíma í morgun, eða sex að íslenskum tíma. Frakkar munu í dag kjósa sér nýjan forseta þar sem kosið er á milli miðjumannsins Emmanuel Macron og Marine Le Pen, forsetaefnis Þjóðfylkingarinnar.
Kjörstöðum verður á mörgum stöðum lokað klukkan 19 að frönskum tíma eða 17 að íslenskum tíma, þó að í sumum stórum borgum verður þeim lokað klukkustund síðar. Má reikna með fyrstu tölum fljótlega eftir að þeim kjörstöðum lokar.
Hinn 39 ára Macron og hin 48 ára Le Pen hlutu flest atkvæði í fyrri umferð kosninganna þann 23. apríl síðastliðinn, en alls voru ellefu frambjóðendur í framboði. Flestir þeirra sem heltust úr lestinni hafa lýst yfir stuðningi við Macron.
Frambjóðendurnir sem kosið er á milli í dag hafa mjög ólíka sýn hvert Frakkland skuli stefna. Þannig er Macron frjálslyndur og mikill stuðningsmaður Evrópusamvinnunnar á meðan Le Pen hefur talað gegn Evrópusambandinu og að stöðva verði straum innflytjenda til Frakklands. Hún vill hverfa frá notkun evrunnar og að kosið verður um ESB-aðild Frakklands.
Skoðanakannanir hafa bent til að Macron muni hafa sigur í kosningunum í dag, en talið er að Le Pen muni græða á því ef kosningaþátttakan verði lítil líkt og spáð er.
Líkt og í fyrri umferð kosninganna verður öryggisgæsla mikil við kjörstaði þar sem um 50 þúsund lögreglumenn verða að störfum ásamt hermönnum úr Sentinelle-sveitinni.
Innanríkisráðuneyti landsins hefur unnið með fulltrúum beggja frambjóðenda á síðustu dögum að tryggja að stuðningsmönnum verður gert kleift að fagna mögulegum sigri með öruggum hætti og að ekki komi til átaka. Er líklegt að á sumum stöðum verður notast við girðingar svipuðum þeim og notaðar eru á tónleikum eða á íþróttaviðburðum.
Búið að opna kjörstaði í Frakklandi

Tengdar fréttir

Erfitt fyrir Macron og hans menn að bregðast við lekanum
Bannað er að há kosningabaráttu daginn fyrir kosningar í Frakklandi, þar sem dagurinn er ætlaður kjósendum til umhugsunar.

Hollande heitir viðbrögðum við gagnalekanum
Forseti Frakklands, Francois Hollande, hefur heitið því að „svara fyrir“ árás tölvuþrjóta á herbúðir Emmanuel Macron, annars frambjóðenda forsetakosninganna sem fram fara á morgun í Frakklandi.